Innkalla Nóakropp

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

Mynd af Nóakropp nammipoka

Nói Síríus, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað frá neytendum Nóa Kropp – súkkulaðihúðaðar maískúlur.

Ástæða innköllunar:

Við framleiðslu á vörunni hafa blandast saman við hana aðrar súkkulaðihúðaðar vörur og því getur hún innihaldið heslihnetur.

Hver er hættan?

Heslihnetur eru á lista yfir ofnæmis- eða óþolsvalda.  Neysla vörunnar getur verið óörugg fyrir neytendur sem hafa ofnæmi- eða óþol fyrir heslihnetum.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Nóa Kropp

Vöruheiti: Súkkulaðihúðaðar maískúlur 

Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: 28. maí 2025

Nettómagn: 200 g

Framleiðandi: Nói Síríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík

Framleiðsluland: Ísland

 

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:

Nói Síríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík.

Dreifing:

Verslanir um land allt.

Leiðbeiningar til neytenda:

Neytendur sem eiga umrædda vöru og hafa ofnæmi- eða óþol fyrir heslihnetum eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni til Nóa Síríusar. 

Nánari upplýsingar um innköllun:

Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Nóa Síríusar í síma 575 1800 eða í gegnum netfangið noi[hja]noi.is.