Innkalla fæðubótarefnið Guli miðinn - B-súper

Innkallanir matvæla

""

Heilsa ehf. hefur, að höfðu samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað fæðubótarefnið Guli miðinn - B-súper vegna þess að það inniheldur of mikið af B6-vítamíni.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Guli miðinn.

Vöruheiti: B-súper.

Best fyrir dagsetningar: Allar.

Lotunúmer: Öll.

Strikanúmer: 5690684000196 og 5690684000172.

Nettómagn: 30 og 120 töflu glös.

Pökkunaraðili: Heilsa ehf., Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík.

Dreifing: Verslanir um land allt.

Neytendum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki eða farga eða skila henni til þeirrar verslunar þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.  Nánari upplýsingar veitir Heilsa ehf. í síma 517 0670.