Innheimtureglum Reykjavíkurborgar breytt fyrir fyrirtæki og einstaklinga

Covid-19 Fjármál

""

Borgarráð hefur samþykkt tímabundnar breytingar á innheimtureglum Reykjavíkurborgar vegna aðgerða sem tengdar eru efnahagslegum áhrifum af Covid-19 faraldrinum. Breytingin snýr bæði að kröfum fyrirtækja og einstaklinga.

Tilgangurinn með því að breyta innheimtureglunum er að auka sveigjanleika í innheimtu í ljósi núverandi efnahagsástands, að innheimta verði sanngjörn og að dráttarvextir og kostnaður verði í lágmarki um leið og hagsmuna borgarinnar verði jafnframt gætt. Markmiðið er að innheimtureglurnar tryggi jafnræði og góða stjórnsýslu og taki mið af gildandi lögum.

Megin breytingin snýr að greiðslufrestum, en í reglunum má finna ný ákvæði um greiðslufresti almennra krafna, um greiðslufresti fasteignagjalda, bæði almenn og sértæk úrræði og um frestun leigugreiðslna. Þar má einnig finna ákvæði um greiðsludreifingu þeirra almennu krafna sem hefur verið frestað og breytingar á ákvæði um dráttarvexti á almennum kröfum.

Almennar kröfur:

Hægt er að óska eftir að lengja eindaga í allt að 90 daga á allt að þremur kröfum í hverjum gjaldaflokki almennra krafna á gildistíma reglnanna.

  • Þetta á ekki við um gjöld sem greiða þarf áður en ákveðin þjónusta er veitt á umhverfis- og skipulagssviði
  • Sækja þarf um þetta úrræði með því að senda póst í netföngin: upplysingar@reykjavik.is eða innheimta@reykjavik.is eða hringja í síma 411-1111.

Hægt verður að óska eftir allt að 6 mánaða greiðsludreifingu á almennum kröfum sem lengt verður í eindaga í samráði við innheimtuaðila Reykjavíkurborgar, Momentum.

Fasteignaskattar og fasteignagjöld:

Eftirstöðvum ógjaldfallinna fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins, fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði, sem koma til gjalda í maí til október verður dreift á mánuðina maí til desember.  Ógjaldfallin fasteignagjöld koma því til greiðslu á 8 mánuðum í stað 6 mánaða.

  • Breytingin snýr bæði að íbúðar- og atvinnuhúsnæði
  • Ekki þarf að sækja sérstaklega um þetta

Fyrirtæki geta óskað eftir því að fresta allt að þremur gjalddögum fasteignaskatta og fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði, vegna tekjufalls, til 15. janúar 2021. Þetta úrræði er í samræmi við nýsamþykkt lög frá Alþingi um aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

  • Skilyrði fyrir þessari frestun eru þau sömu og skilyrði fyrir frestun opinberra gjalda sem sækja þarf um hjá Skattinum.
  • Fyrirtæki sækja um þessa frestun með því að senda inn erindi vegna fasteignagjalda.
  • Fyrirtæki skulu hafa sótt um sambærilega frestun opinberra gjalda hjá Skattinum og með umsókninni þarf að fylgja staðfesting frá Skattinum fyrir umsókn um frestun opinberra gjalda.

Frestun á leigugreiðslum:

Leigutakar hjá Reykjavíkurborg geta óskað eftir frestun greiðslu leigu á allt að fjórum gjalddögum, þ.e. þeim leigugreiðslum sem eru á gjalddaga í mars, apríl, maí og júní.

  • Leigutakar þurfa að sýna fram á að minnsta kosti þriðjungs tekjutap miðað við sama tíma árið 2019 og skila inn viðeigandi gögnum skv. nánari leiðbeiningum.
  • Leigutakar skulu sækja um þessa frestun með því að senda erindi á póstfangið: esr@reykjavik.is

Dráttarvextir:

Dráttarvextir reiknast af höfuðstól almennra krafna frá eindaga fram að greiðsludegi sé krafa greidd eftir eindaga.

  • Hingað til hafa dráttarvextir reiknast af höfuðstól almennra krafna frá gjalddaga að greiðsludegi sé krafa greidd eftir eindaga.

Dráttarvextir reiknast af höfuðstól fasteignagjaldakrafna frá gjalddaga fram að greiðsludegi sé krafa greidd eftir eindaga.

  • Þetta er óbreytt frá því sem verið hefur enda eru gjalddagar, eindagar og útreikningur dráttarvaxta á þau bundin í lög.

 

Reglurnar gilda frá 2. apríl 2020 til 31. desember 2020.