Íbúar beðnir að moka frá tunnum

Umhverfi

""

Öll hirða er mjög þung þessa dagana og því óskar starfsfólk sorphirðunnar eftir því við íbúa að þeir moki frá tunnum eins og mögulegt er.  „Við erum í Vesturbæ að hreinsa gráu tunnuna eða heimilissorpið og síðan austan Snorrabrautar að hreinsa grænu og bláu fyrir pappír og plast,“ segir Sigríður Ólafsdóttir, rekstrarstjóri sorphirðu. Á morgun verða þau í miðbænum.

Vandasamt getur verið að komast að tunnunum í tíðarfari sem þessu, stundum eru sorpgeymslur í kjöllurum og inn í görðum. Borgarbúar eru því beðnir um að kanna aðstæður og fylgjast með losun samkvæmt sorphirðudagatalinu

Sorphirða Reykjavíkur þakkar kærlega fyrir og mun gera sitt besta til að losa allar tunnur samkvæmt áætlun en bendir á að mikilvægt sé að íbúar leggi lið við snjómoksturinn. Gott er einnig að athuga með lýsingu við sorpgeymslur og skýli.

Tengill      

Sorphirðudagatal