No translated content text
Hvernig útrýmum við kynbundnum launamun? Er málþing á vegum borgarinnar, sem haldið verður þriðjudaginn 8. maí nk. í Tjarnarsal ráðhússins. Málþingið hefst klukkan hálfníu með léttri morgunhressingu.
Dagskrá málþingsins:
8:30-9:00 Létt morgunhressing
9:00-9:10 Opnunarávarp
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
9:10-9:30 Þróun kynbundins launamunar á Íslandi og innleiðing jafnlaunastaðals
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar
9:30-9:50 Jafnlaunavottun og kjör kvennastétta
Þorsteinn Víglundsson, alþingismaður
9:50-10:10 Starfsmat sem aðferð í baráttu gegn kynbundnum launamun
Helga Björg Ragnarsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
10:10-10:30 Vilji er allt sem þarf
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
10:30-10:50 Hver er ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar?
Maríanna Traustadóttir, jafnréttisfulltrúi Alþýðusambands Íslands
Fundarstjóri verður Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar. Öll velkomin bæði í sal og að horfa á streymi hér frá þinginu.