Frisbígolfbrautir, infrarauð sauna, ævintýragarður, hugleiðsluróla og gaga völlur eru meðal verkefna sem Reykvíkingar völdu í lýðræðisverkefninu Hverfið mitt á síðasta ári. Borgarráð hefur nú heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út verkefni sem koma til framkvæmda á þessu og næsta ári. Áætlaður kostnaður er 450 milljónir króna.
Hverfið mitt er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til nýframkvæmda í hverfum Reykjavíkurborgar. Þar gefst íbúum kostur á að hafa áhrif á sitt nánasta umhverfi með því að senda inn hugmyndir að verkefnum í sínum hverfum og síðan er kosið á milli þeirra í rafrænni íbúakosningu. Slík kosning fór síðast fram í september 2023 og var kosningaþátttaka í borginni allri 12%. Af þeim sem kusu voru konur í meirihluta með tæp 62% atkvæða, karlar voru rúm 38% kjósenda og kvár 0,04%.
Verkefnin sem kosin voru til framkvæmda í haust eru 62 talsins og er áætlaður framkvæmdatími maí 2024 til desember 2025. Verkefnin eru afar fjölbreytt og eru þau eftirfarandi:
Árbær
- Áningarstaður og bekkir við Rauðavatn
- Frisbígolfbrautir í Norðlingaholti
- Leiktæki fyrir börn í Árbæjarlaug
- Tengja göngustíga við gömlu kartöflugeymslurnar
- Sumarblóm í hringtorg
- Samverustaður við Rauðavatn
Breiðholt
- Jólaljós á tré við göngustíg
- Fjölga bekkjum í Breiðholti
- Betrumbæta frisbígolfvöllinn í Breiðholti
- Nálabox
- Hærri bekkir fyrir eldri borgara
- Infrarauð sauna í Breiðholtslaug
- Lýsing við fótboltavöllinn við Bakkasel
- Mínígolf
- „Velkomin í Breiðholt“ skilti
- Útigrill í Seljahverfi
Grafarholt og Úlfarsárdalur
- Stikuð gönguleið við rætur Úlfarsfells
- Reynisvatn- fallegri aðkoma
- Göngustígur milli Úlfarsárdals og Hafravatns
- Gróður og áningarstaðir í Úlfarsárdal
- Bekkir við Reynisvatn
Grafarvogur
- Gróðurlundur á Geldinganesi
- Fjölga áningarstöðum í hverfinu
- Infrarauð sauna í Grafarvogslaug
- Stjörnukíkir á útsýnispallinum í Húsahverfi
- Endurbæta Hallsteinsgarð
- Útiæfingatæki í kringum Grafarvog
Háaleiti og Bústaðir
- Bæta tengingu milli Skeifunnar og göngubrúarinnar
- Bekkir og ruslatunnur
- Flokkunartunnur við göngustíga
- Meiri gróður í Fossvogsdalinn
- Hjólastæði við Víkingsheimilið í Safamýri
- Ævintýragarður
- Gróður við Háaleitisbraut
- Hugleiðsluróla milli Hólmgarðs og Hæðargarðs
- Systkinarólur og ungbarnarólur
Hlíðar
- Ærslabelgur á Klambratún
- Snyrtilegri undirgöng
- Gróðursetja við umferðargötur
- Ungbarnarólur í Hlíðunum
- Fegra hringtorgið við Hlíðaskóla
- Matjurtagarður í Hlíðunum
Kjalarnes
- Gaga völlur
- Lítill heitavatnspottur við sjósundsaðstöðuna
Laugardalur
- Jólaland í Laugardalnum
- Alexöndruróló
- Gera upp Sunnutorg
- Útigrill á Aparóló
Miðborg
- Litríkur gróður í Miðborg
- Gróður við Sæbraut
- Körfuboltavöllur við Austurbæjarskóla
- Andahús á Tjörnina
- Bekkir og blóm á Hlíðarenda
- Vatnspóstur í Hljómskálagarðinn
Vesturbær
- Grænni Vesturbær
- Jólaljós í Vesturbæjarlaug
- Bekkir og ruslatunnur
- Vatnspóstur við Ægisíðu
- Leiktæki í Vesturbæjarlaug
- Vistlegri Meistaravellir
- Stigi niður í fjöru við Eiðsgranda
- Útigrill á Landakotstún
Upplýsingar um verkefnin og kostnað við þau.
Glerveggur í Klébergslaug á Kjalarnesi var settur upp eftir kosningu í verkefninu Hverfið mitt.