Hvað er friður fyrir mér?- Sigurvegarar í myndlistarkeppni barna

Mannlíf Menning og listir

Frá vinstri: Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Valdimar Atli Magnússon Briem í 5. bekk Engjaskóla, Hreiðar Birkir Baldvinsson í 5. bekk Engjaskóla, Karítas Maísól Frantzdóttir í 6. bekk Klébergsskóli, Fausteja Juzelenaite í 8. bekk Laugalækjarskóla, Arnór Logi G
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Valdimar Atli Magnússon Briem í 5. bekk Engjaskóla, Hreiðar Birkir Baldvinsson í 5. bekk Engjaskóla, Karítas Maísól Frantzdóttir í 6. bekk Klébergsskóli, Fausteja Juzelenaite í 8. bekk Laugalækjarskóla, Arnór Logi Guðmundsson í 9. bekk Dalskóla, Nína Hildur Kristjánsdóttir í 7. bekk Laugalækjarskóla, Hanna Otte í 7. bekk Árbæjarskóla, Harpa Þorvaldsdóttir og Pia Elisabeth Hansson. Hópmynd af sigurvegurum í teiknisamkeppni barna, Mayors for Peace á sviði í Iðnó.

Myndir sjö reykvískra grunnskólanema hafa verið valdar sem framlög Reykjavíkur í alþjóðlega myndlistarsamkeppni barna. Samtök friðarborgarstjóra (e. Mayors for Peace) standa árlega fyrir keppninni í aðildarborgum sínum og börnum í Reykjavík gafst nú í annað sinn tækifæri til þátttöku.

Þema keppninnar er „Hvað er friður fyrir mér?“ (e. What Peace Means to Me) og voru úrslit reykvísku keppninnar tilkynnt á alþjóðlegri ráðstefnu Höfða friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands, The Imagine Forum, í Iðnó í gær. Keppnin var ætluð börnum á aldrinum 6-15 ára sem búa og/eða sækja nám í Reykjavík og var keppt í tveimur aldursflokkum, 6-10 ára og 11-15 ára.

Viðtökur kennara og barna við keppninni voru frábærar og voru verkin afar fjölbreytt og falleg. Því var ljóst að dómnefndarinnar beið erfitt verkefni, en hana skipuðu Agnes Ársælsdóttir, myndlistarmaður, sýningastjóri og formaður dómnefndar, Auður Birna Stefánsdóttir, sérfræðingur hjá Höfða friðarsetri Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands, og Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.

Teikning Arnórs Loga Guðmundssonar í teiknisamkeppni Mayors for Peace. Tvær manneskjur sitja og veiða.

Höfundur: Arnór Logi Guðmundsson, 9. bekk í Dalskóla.

Verðlaunamyndir gætu ratað víða

Velja mátti nokkur verk úr hvorum aldursflokki til að senda í alþjóðlegu keppnina fyrir hönd Reykjavíkur, en myndirnar sem sigra þá keppni verða notaðar víða, meðal annars í kynningarefni um mikilvægi menntunar á sviði friðarmála, til dæmis á ráðstefnum á vegum Sameinuðu þjóðanna.

Kennurum eru sendar þakkir fyrir frábært samstarf og öllum þátttakendum þökkum við fyrir fallegu listaverkin þeirra. Verk eftirfarandi listafólks voru valin áfram í erlendu keppnina fyrir hönd Reykjavíkur:

Teikning eftir Fausteja Juzelenaite í 8. bekk Laugalækjarskóla í teiknisamkeppninni Mayors for Peace

Höfundur: Fausteja Juzelenaite í 8. bekk Laugalækjarskóla.

Í flokki 6-10 ára:

Hreiðar Birkir Baldvinsson, 5. bekkur, Engjaskóli

Valdimar Atli Magnússon Briem, 4. bekkur, Engjaskóli

 

Í flokki 11-15 ára:

Karítas Maísól Frantzdóttir, 6. bekkur, Klébergsskóli

Nína Hildur Kristjánsdóttir, 7. bekkur, Laugalækjarskóli

Hanna Otte, 7. bekkur, Árbæjarskóli

Fausteja Juzelenaite, 8. bekkur, Laugalækjarskóli

Arnór Logi Guðmundsson, 9. bekkur, Dalskóli

 

Allar myndirnar sem verða sendar fyrir hönd Reykjavíkur í alþjóðlegu keppnina, má sjá á Facebook-síðu Reykjavíkur.

Teikning Hreiðars Birkis Baldvinssonar í teiknisamkeppni Mayors for Peace

Höfundur: Hreiðar Birkir Baldvinsson, í 5. bekk Engjaskóla.