Hugmyndasöfnun vegna nýframkvæmda og viðhaldsverkefna er hafin á hverfidmitt.is og geta íbúar bæði sett inn eigin hugmyndir og skoðað hugmyndir annarra næstu þrjár vikurnar, en hugmyndasöfnun lýkur 20. mars.
Þetta er í sjöunda sinn sem Reykjavíkurborg efnir til hugmyndasöfnunar af þessu tagi og er framkvæmdafé 450 milljónir króna, sem er sama upphæð og var í fyrra. Hugmyndir sem settar eru inn núna og hljóta kosningu koma til framkvæmda á næsta ári.
Hugmyndirnar eiga að:
- bæta hverfið á einhvern hátt.
- rúmast innan fjárhagsáætlunar hverfisins.
- vera framkvæmanlegar innan þess tímaramma sem verkefninu er gefinn.
- falla að skipulagi borgarinnar og stefnu og vera á borgarlandi.
- færa hverfið nær framtíðarsýn íbúanna, t.d. snjallt hverfi, heilsueflandi, barn- og aldursvænt.
Hugmyndirnar geta t.d. varðað :
- umhverfi og möguleika allra aldurshópa til útivistar og samveru.
- aðstöðu til leikja og afþreyingar.
- betri aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi borgarbúa.
- snjallar útfærslur á allskonar.
Innsendar hugmyndir eru svo metnar út frá þessum punktum og stillt upp til kosninga meðal íbúa. Kosið verður í október.
Tengdar síður:
- Taka þátt í hugmyndasöfnun á hverfidmitt.is
- Fá nánari upplýsingar um fyrirkomulag verkefnisins Hverfið mitt 2018
- Upplýsingar um hvað kosið var árið 2017 og framkvæmt verður í ár
- Upplýsingar um verkefni sem kosin voru 2016 og framkvæmd voru 2017