Hrekkjavaka heima við

Skóli og frístund

""

Almannavarnir höfuðborgarsvæðisins hvetja foreldra og forráðamenn til að halda upp á hrekkjavöku með börnum sínum með öðru sniði í ár vegna samkomutakmarkana. 

Laugardaginn 31. október er hrekkjavaka sem sífellt hefur notið meiri vinsælda hér á landi. Víða hefur skapast sú hefð að börn gangi í hús með „grikk eða gott" en nú er fyrirsjáanlegt að breyting verði á því. 

Að teknu tilliti til þess að enn er í gildi neyðarstig almannavarna vegna COVID-19 hvetjja almannavarnir foreldra og forráðamenn atil ð halda upp á hrekkjavökuna með börnum sínum með öðru sniði í ár. Veiran getur svo auðveldlega smyglað sér á milli staða og einstaklinga enda snertifletirnir margir þegar gengið er hús úr húsi til að fá sælgæti. Áhættan við að fá smit er afar mikil eins og staðan er núna.

Við erum öll almannavarnir, höldum áfram að vinna að því saman að fækka smitum og komast á betri stað en við erum í dag.

Við getum gert þetta saman og samstaða er besta sóttvarnaraðgerðin! 

Upplýsingar frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vegna hrekkjavöku.