Hreinsun á Nesjavallaæð í júní

Umhverfi

Nesjavallaæð

Veitur munu í júní hreinsa Nesjavallaæð að innan til að bæta flutningsgetu hennar til muna. Lögnin var hreinsuð síðast árið 2003 og tímabært að gera það aftur. Nesjavallaleið verður lokað á meðan hreinsunarvinnan stendur yfir til að gæta fyllsta öryggis.

Hreinsunin er nauðsynleg til að minnka þrýstifall og mun standa yfir frá 30. maí til 30. júní. Á meðan á framkvæmdum stendur þarf að loka lögninni og verður heitavatnslaust í Dallandi, Miðdal og Lynghólsveitu á tímabilinu. Að öðru leyti mun aðgerðin ekki hafa nein áhrif á heitt vatn til íbúa á höfuðborgarsvæðinu.

Hvers vegna þarf að hreinsa Nesjavallaæð?

Nesjavallaæð er um 30 km löng hitaveitulögn sem flytur um 85 gráðu heitt vatn frá virkjuninni á Nesjavöllum til höfuðborgarsvæðisins. Hún var tekin í notkun árið 1990 og flutningsgeta hennar er liðlega 1.700 lítrar á sekúndu.

Nesjavallaæð er ein af megin flutningsleiðunum á heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu. Tímabært er að hreinsa hana núna þar sem steinefni úr vatninu hafa fallið á pípuna. Slíkar útfellingar gera það að verkum að þrýstifall eykst sem skerðir flutningsgetu. Við hreinsunina er hreinsibúnaður settur inn í lögnina, eins konar skrúbbur, sem hreinsar pípuveggina.

Óhreinu vatni hleypt á yfirborðið

Hleypa þarf um 60°C heitu óhreinu vatni út á yfirborðið við stýrishús hitaveitu við Mjódalsveg á Reynisvatnsheiði, til að koma í veg fyrir að óhreinindin dreifist út í kerfið. Vegfarendur munu sjá áhrifin á svæðinu, þar sem gróðurinn mun verða fyrir skemmdum af völdum hitans. Þetta er gert í fullu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og skrifstofu umhverfisgæða Reykjavíkurborgar.

Veitur munu ganga eins vel frá öllu yfirborði og mögulegt er þegar hreinsun er lokið. Skemmdir á umhverfinu verða ekki varanlegar. Búast má við að vatn geti borist á um 32.000 fm2 svæði en þó er vonast eftir því að nálægar sprungur í bergi taki við mestu af vatninu sem mun þá minnka umfang vatns á yfirborði.

Öryggi tryggt

Til að tryggja öryggi vegfaranda og starfsfólks verður Nesjavallaleið lokuð á meðan hreinsunarvinnan stendur yfir, auk þess verður reiðstígum norðan við Mjódalsveg lokað. Vegagerðin hefur auglýst þá lokun. Svæðið verður vel merkt og varað við hættunni sem skapast vegna hitans á vatninu sem hleypt er út á yfirborðið.