HönnunarMars 2020 settur í dag

Menning og listir Mannlíf

""

Hönnunarmars 2020 verður settur í dag á Lækjartorgi. Borgarstjóri opnar Hönnunarmars formlega með því að afhjúpa hönnunarverkið Torg í speglun eftir Valdísi Steinarsdóttur og Arnar Inga Viðarson. 

Verkið er hluti af verkefninu Torg í biðstöðu sem hefur miðað af því að glæða torg og almenningssvæði borgarinnar lífi síðastliðin 9 ár – þar sem markmiðið er að búa til skemmtilegri svæði, hampa því óvænta og vera vettvangur róttækra tilrauna með borgarumhverfið.  Torg í speglun þjónar hlutverki almenns áningarstaðar og er innsetningarverk sem brýtur upp sjónlínur áhorfandans.  Verkið endurspeglar nærumhverfi sitt og þá einstaklinga sem verkið skoða og geta þar af leiðandi áhorfendur upplifað sjálfa sig og umhverfið á nýjan hátt frá mismunandi sjónarhornum.  Í þessu verki mætast HönnunarMars og verkefnið Sumarborgin 2020 – sem miðar að því efla miðborgina sem áfangastað fyrir alla í sumar.

Á dagskrá HönnunarMars 2020 eru um 80 sýningar og 100 viðburðir sem teygja sig yfir allt höfuðborgarsvæðið. Viðburðir eru á dagskrá allt frá Seltjarnarnesi, gegnum Hafnartorg og miðbæinn, Skeifuna og Kópavog til Garðabæjar, Hafnarfjarðar og Mosfellsbæjar.

Vöruhönnun, fatahönnun, arkitektúr, grafísk hönnun, gullsmíði, nýsköpun, tækni, sjálfbærni, keramík, textíll og margt fleira kemur við sögu.

Þetta er í tólfta sinn sem HönnunarMars fer fram en hátíðin boðar nýjungar og óvænta nálgun. Hún er lífleg höfn hugmynda, ólíkra sjónarmiða og þekkingar. HönnunarMars er hreyfiafl sem auðgar og bætir samfélagið. Öll áhersla hátíðarinnar í ár er á sýningar og sýnendur og um leið upplifun og öryggi gesta.

HönnunarMars er boðberi bjartsýni og skapandi krafta í samfélaginu. Nú gefst tækifæri til að beina sjónum að hönnun sem drifkrafti til nýsköpunar og sýna hversu mikilvægu hlutverki þessar greinar gegna á þessum óvissutímum í samfélaginu. Sem ein af sex borgarhátíðum Reykjavíkur standa vonir til að hátíðin í ár veiti íbúum og gestum borgarinnar innblástur og gleði.

Gott yfirlit yfir dagskrá hátíðarinnar er að finna á vef HönnunarMars.