Hólmfríður Helga ráðin upplýsingafulltrúi velferðarsviðs

Velferð

""

Hólmfríður Helga Sigurðardóttir blaðamaður hefur verið ráðin sem upplýsingafulltrúi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar en starfið var auglýst í byrjun apríl.

Hólmfríður hefur fjölbreytta og farsæla reynslu af störfum hjá fjölmiðlum á Íslandi, en síðustu fjögur ár hefur hún starfað sem blaðamaður á Stundinni. Áður vann hún meðal annars sem blaðamaður á  Fréttablaðinu í sjö ár  auk þess sem hún starfaði í afleysingum á fréttastofu RÚV um tveggja ára skeið.

Hólmfríður er viðskiptafræðingur að mennt með meistaragráðu í fjölmiðlun, samskiptum og mannvísindum frá UAB háskólanum í Barcelona og diplómagráðu í prisma frá Háskólanum á Bifröst. Auk fyrrgreindra starfa hefur Hólmfríður einnig fengist við fjölbreytt verkefni; skrifað viðtöl og fréttir fyrir ýmsa prent- og netmiðla, gefið út eigin bók, séð um íslenskukennslu í Barcelona og árið 2016 starfaði hún sem kynningarstjóri Listahátíðar í Reykjavík.

Hólmfríður var valin úr hópi 79 umsækjenda og tekur hún til starfa um miðjan ágúst næstkomandi.