Höfðinn – nýtt hverfi í mótun - BEIN ÚTSENDING

Samgöngur Útsendingar

""

Í dag verður bein útsending á vegum Reykjavíkurborgar til að kynna hugmyndir um nýtt 20.000 manna hverfi á Ártúnshöfða og við Elliðaárvog.  Hugmyndir um að breyta gamalgrónu iðnaðarhverfi í lifandi og græna íbúðabyggð verða kynntar áður en deiliskipulag fer í formlegt ferli til að fá fram sjónarmið íbúa og fyrirtækja. Gert er ráð fyrir að deiliskipulag fari í auglýsingu í apríl og þá tekur við lögbundið ferli.

 

Útsendingin hefst kl. 17.00 á kynningarsíðu verkefnisins skipulag.reykjavik.is og byggist dagskrá á stuttum kynningum fjölmargra sem komið hafa að verkefninu til þessa:

Dagskrá:

  • Pawel Bartoszek, formaður skipulagsráðs: Áherslur í uppbyggingu og ferlið framundan
  • Björn Guðbrandsson, arkitekt hjá Arkís: Höfðinn – nýr borgarhluti í mótun - helstu forsendur og markmið
  • Páll Gunnlaugsson, arkitekt hjá ASK arkitektum: Krossamýrartorg – nýr kjarni í austurhluta borgarinnar
  • Sigurbjörg Helga Gunnbjörnsdóttir, skipulagsfræðingur hjá Arkís: Elliðaárvogurinn – borgin við sundin
  • Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt hjá Landslagi: Grænasti borgarhlutinn – Græn svæði og almenningsrými.
  • Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri á fagskrifstofu grunnskóla á Skóla-og frístundasviði: Skólahverfið – samspil skóla og umhverfis.
  • Anna Guðrún Stefánsdóttir, umferðar-og skipulagsverkfræðingur hjá Verkís: Áherslur á blöndun ólíkraferðamáta.

Fundarstjóri er Birkir Ingibjartsson verkefnisstjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Lögð er áhersla á að svara fyrirspurnum sem sendar verða á netfangið hofdinn@reykjavik.is hvort heldur sem þær berast fyrir fundinn eða meðan útsending varir.  

Tengt efni: