Höfðinn verður grænasta hverfi landsins

Samgöngur Umhverfi

Tölvuteiknuð mynd af Krossmýrartorgi.

Hugmyndir um að breyta gamalgrónu iðnaðarhverfi í lifandi og græna íbúðabyggð eru að taka á sig skýrari mynd og nú boðar Reykjavíkurborg til forkynningar á deiliskipulagstillögum sem eru í vinnslu fyrir Ártúnshöfða og Elliðaárvog.Bein útsending verður fimmtudaginn 25. febrúar kl. 17.00

Með því að kynna hugmyndirnar áður en deiliskipulagið fer í auglýsingu er kallað eftir viðbrögðum íbúa og fyrirtækja þannig að taka megi tillit til sem flestra sjónarmiða áður en hið formlega ferli hefst. Gert er ráð fyrir að deiliskipulag fari í auglýsingu í byrjun apríl og þá tekur við lögbundið ferli.

Bein útsending og nýr kynningarvefur

Nýr kynningarvefur hefur verið opnaður og þar er hægt að skoða meginhugmyndir í fyrirhugaðri uppbyggingu. Vefslóðin er skipulag.reykjavik.is.

Bein útsending með kynningum þeirra sem komið hafa að skipulagi svæðisins verður fimmtudaginn 25. febrúar kl. 17.00 – 18.30 og verður þeim streymt inn á vefsíðu verkefnisins.  Auk kynninga verður leitast við að svara spurningum sem berast fyrir fundinn eða eftir að útsending hefst. Spurningum verður svarað á fundinum og þær verða einnig settar á vefinn. Upptaka útsendingar verður aðgengileg að fundi loknum.

Höfðinn – borgarhluti með 20.000 íbúum

Ártúnshöfði og Elliðaárvogur er stærsta þróunar- og uppbyggingarsvæði Reykjavíkur. Áætlað er að í þessum nýja borgarhluta sem kallaður er Höfðinn rísi allt að átta þúsund íbúðir og að íbúar geti orðið allt að 20.000 í fullbyggðum borgarhluta. Innan hverfisins er gert ráð fyrir þremur grunnskólum í bland við aðra þjónustu og atvinnustarfsemi. Hryggjarstykki uppbyggingarinnar er meðfram fyrirhugaðri Borgarlínu sem liggur í gegnum mitt skipulagssvæðið.

Undirbúningur hefur staðið yfir um nokkurt skeið. Árið 2015 var haldin hugmyndasamkeppni um þróun svæðisins og í framhaldi var unnið rammaskipulag sem var samþykkt í ársbyrjun 2016.  Mikill áhugi var fyrir uppbyggingunni og var húsfyllir þegar hún var kynnt í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í febrúar 2017. Sjá frétt með kynningarefni: Mikill áhugi fyrir Elliðaárvogi og Ártúnshöfða. Kynningin núna verður hins vegar eingöngu í streymi vegna samkomutakmarkana.

Vistvænt og sjálfbært umhverfisvottað hverfi

Nálægt hverfisins við strandlengjuna og grænan útivistarás Elliðaárdalsins skapar því mikla sérstöðu og gerir jafnframt kröfur um að borgarumhverfi og byggingar séu sem mest vistvæn og sjálfbær. Í hverfinu verða megináherslur Græna plansins um þéttbyggt borgarumhverfi, hágæða almenningssamgöngur, góða möguleika til samgönguhjólreiða, lífsgæða, sem og grænt og fallegt umhverfi að veruleika. Stefnt er að því að deiliskipulagsáætlanirnar fyrir Ártúnshöfða og Elliðavog fái BREEAM umhverfisvottun.

Deiliskipulag í auglýsingu fyrir páska

Heildarsvæðinu hefur verið skipt upp í fimm deiliskipulagssvæði og verður deiliskipulag fyrir svæði 1 og 2 auglýst fyrir páska. Þessi svæði verða kynnt sérstaklega í útsendingunni á fimmtudag.

Fasteignaþróunarfélögin Klasi og Heild eiga lóðir á þessum svæðum og hafa þau unnið með Reykjavíkurborg að uppbyggingarhugmyndum.

Tengt efni: