Hlaut verðlaun í myndlistarsamkeppni Samtaka friðarborgarstjóra

Fv. Guðlaug Erla Gunnarsdóttir, skólastjóri í Ingunnarskóla, Sindri Guðnason, faðir Margrétar, Margrét Mjöll Sindradóttir , verðlaunahafi, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Petra Hólmgeirsdóttir, móðir Margrétar.
Afhending verðlauna í myndlistakeppni friðarborgarstjóra

Margrét Mjöll Sindradóttir, nemandi í tíunda bekk Ingunnarskóla, hlaut sérstök verðlaun dómnefndar í myndlistarkeppninni „Hvað er friður fyrir mér?“ sem Samtök friðarborgarstjóra (Mayors for Peace) stóðu fyrir í október. Hún kom til fundar við borgarstjóra í dag sem hann færði henni blómvönd í tilefni af verðlaununum.

Samtök friðarborgarstjóra (e. Mayors for Peace) standa fyrir árlegri myndlistarsamkeppni grunnskólabarna í aðildarborgum og nú í haust gafst reykvískum börnum í fyrsta sinn tækifæri til þátttöku. Þema keppninnar að þessu sinni var „Hvað er friður fyrir mér?“ (e. What Peace Means to Me) og voru úrslit reykvísku keppninnar tilkynnt á alþjóðlegri friðarráðstefnu í Hörpu sem haldin var í október.

Keppt var í tveimur aldursflokkum, 6-10 ára og 11-15 ára og bárust 593 listaverk frá 19 skólum. Tíu myndir voru síðan valdar sem framlög Reykjavíkur í alþjóðlega myndlistarsamkeppni barna og úrslit hennar liggja nú fyrir. Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hvorum aldursflokki en þar að auki veitir dómnefndin sérstök verðlaun (e. special prize) sem Margrét Mjöll hlaut í eldri aldursflokknum. Í hennar aldursflokki bárust 2230 myndir í lokaúrslitin.

Á vefsíðu Samtaka friðarborgarstjóra segir Margrét Mjöll um myndina sína að verkið hennar eigi að endurspegla þá tilfinningu að líða eins og heima hjá sér. Að vera á stað þar sem vandamál hverfi og allar áhyggjur heimsins varðandi stríð, átök, hatur og óréttlæti gufi upp. „Þér finnst eins og tíminn stöðvist um stund. Þú getur loksins andað í augnablik, hætt að hafa áhyggjur og upplifað frið úti í fallegri náttúrunni. Við ættum ekki að upplifa flóttatilfinningu en flest okkar langar stundum að flýja og við þurfum í raun að gera það,“ segir hún.

„Ég óska Margréti Mjöll og Ingunnarskóla innilega til hamingju með verðlaunin,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri þegar Margrét Mjöll kom á skrifstofu borgarstjóra í dag og tók við fallegum blómvendi og hamingjuóskum. „Það er svo sannarlega glæsilegur árangur að sigra í stórri alþjóðlegri myndlistarsamkeppni.“

Með Margréti Mjöll komu foreldrar hennar, Petra Hólmgeirsdóttir og Sindri Guðnason ásamt Guðlaugu Erlu Gunnarsdóttur, skólastjóra Ingunnarskóla. Margrét Mjöll var að vonum ánægð með verðlaunin og á framtíðina fyrir sér. 

Mynd Margrétar Mjallar Sindradóttur

Sigurmyndirnar verða notaðar víða, meðal annars í kynningarefni um mikilvægi menntunar á sviði friðarmála, til dæmis á ráðstefnum á vegum Sameinuðu þjóðanna.