Hlaðan - nýtt upplýsingastjórnunarkerfi borgarinnar

""

Reykjavíkurborg hefur að loknu umfangsmiklu samkeppnisviðræðuferli gengið til samninga við hugbúnaðarfyrirtækið Hugvit hf. um kaup á NÝJU UPPLÝSINGASTJÓRNUNARKERFI (e. Information Management System)

Vaskur hópur í sérstakri nafnavalnefnd þjónustu- og nýsköpunarsviðs hélt vinnustofu með þjóðfundarfyrirkomulagi til að velja nafn á hið nýja kerfi. Mun það bera eiginnafnið Hlaðan.

Hlaðan er stór og í henni rúmast margt. Hlaðan hefur sögulegt gildi fyrir Íslendinga. Margir eiga hlýjar minningar og hugrenningatengsl við hlöður og er hlaðan sveipuð rómantískum blæ í huga valnefndar.

Hlaðan er líka þeim kostum gædd að það er hægt að setja næstum hvað sem er inn í hana og tengja við hana hin ýmsu vinnutæki. Þannig er hægt að setja inn í Hlöðuna, varpa úr henni og taka til í henni. Það er hægt að hlaða í Hlöðuna, færa í hana bagga sem og stóra gagnapakka.

Hlaðan er skilvirk og notendavæn. Hún styður við ferli mála og verkefna og hefur umsjón með gæðamálum, fundum, samningum, verkefnastjórnun, skjalavistun, notendum, eignum, nefndum, ráðum og viðskiptavinum. Hlaðan mun halda utan um myndun, umsjón, umsýslu, vinnslu, notkun, stjórnun, vörslu og rafræn skil upplýsinga á öllum sviðum borgarinnar.

Því er ljóst að Hlaðan er ekki „bara“ skjalakerfi heldur svo miklu, miklu meira!

Á næstu vikum fer af stað ferla- og greiningarvinna fyrir fyrsta hluta innleiðingar Hlöðunnar. Gert er ráð fyrir að innleiðing hefjist í byrjun nýs árs.