Hjólasöfnun Barnaheilla er hafin

Velferð Íþróttir og útivist

""
Hjólasöfnun Barnaheilla - Save the Children á Íslandi var formlega hleypt af stokkunum í dag í Sorpu á Sævarhöfða. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, gáfu hjól til söfnunarinnar og hvöttu þannig aðra til að koma ónotuðum hjólum í notkun á ný. 
Þetta er í fimmta sinn sem hjólasöfnunin fer fram en hún er unnin í samstarfi við Æskuna barnahreyfingu IOGT, Sorpu og ýmsa aðra velunnara. Pósturinn sér um móttöku hjóla á landsbyggðinni.

Hjólin verða gefin börnum og unglingum sem ekki hafa kost á því að kaupa sér reiðhjól. Hægt er að sækja um hjól hjá félagsþjónustu sveitarfélaganna.
 
Hjólunum verður safnað á endurvinnslustöðvum Sorpu á Dalvegi í Kópavogi, Breiðhellu í Hafnarfirði, Sævarhöfða, Ánanaustum og Jafnarseli í Reykjavík og Blíðubakka í Mosfellsbæ. Söfnunin stendur yfir til 30. apríl 2016 og úthlutanir fara fram í maí.
 
Sjálfboðaliðar munu gera hjólin upp undir styrkri stjórn sérfræðinga í reiðhjólaviðgerðum áður en þau verða afhent.
Hundruð barna hafa notið góðs af hjólasöfnun Barnaheilla frá því henni var fyst hrundið af stað árið 2012.

Hægt er að fylgjast með verkefninu á Facebook síðu söfnunarinnar og skrá sig þar til þátttöku í sjálfboðaliðastarf fyrir hjólaviðgerðir.