Hjólaleiðsögn með Steini Ármanni leikara

Mannlíf

""

Sunnudaginn 16. júlí mun Steinn Ármann Magnússon leikari hjóla með gesti um Viðey í leiðsögn sem verður bæði gamansöm og fróðleg.

Hjólaleiðin er ekki strembin þannig að allir ættu að geta komið og verið með, hjólagarpar sem og byrjendur á öllum aldri. Þátttakendur koma með eigin reiðhjól og þeim verður kippt með í ferjuna. Allir eru velkomnir enda hentar hjólatúrinn öllum sem hafa gaman að því að hjóla.

Siglt verður stundvíslega frá Skarfabakka klukkan 13:15. Þeir sem vilja fá sér léttan hádegisverð í Viðeyjarstofu fyrir hjólreiðaferðina er bent á að taka 12:15 ferjuna.

Gjald í ferjuna fram og til baka er 1.500 kr. fyrir fullorðna, 1.350 kr. fyrir eldri borgara og 750 kr. fyrir börn 7 – 17 ára í fylgd fullorðinna. Börn 6 ára og yngri sigla frítt.

Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna  og af veitingum í Viðeyjarstofu. Handhafar Gestakortsins sigla frítt.

Cycling tour with actor Steinn Ármann

On Sunday 16th July, the Icelandic actor Steinn Ármann Magnússon will be cycling with guests around Viðey Island on a fun and informative tour. The trail isn't difficult so everyone from seasoned cyclist to beginners of all ages can join in the fun. Participants should bring their own bike with them on the ferry.

Everyone's welcome and especially those who enjoy riding a bike!

Return ferry tickets cost 1.500 ISK for adults, 1.350 ISK for senior citizens and 750 ISK for children 7 – 17 years old accompanied by parents or guardians. Tickets are free for children 6 years and under.

Holders of the Reykjavík City Card travel for free.
Those with a Reykjavík Culture Pass receive a 10% discount on ferry tickets.