Hinsegin dagar opnaðir með varanlegum fána

Hinsegin dagar settir 2024

Hinsegin dagar voru formlega settir í hádeginu þegar hinsegin fáninn var málaður fyrir framan Hinsegin félagsmiðstöð S’78 og Tjarnarinnar við Barónsstíg. Mikil gleði var í loftinu og meira segja sólin leit við.

Hrefna Þórarinsdóttir

Hrefna Þórarinsdóttir er forstöðukona Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar.

Um 100 ungmenni sækja Hinsegin félagsmiðstöðina í viku hverri

Formaður Hinsegin daga, Helga Haraldsdóttir bauð fólk velkomið á viðburðinn en partur af hinsegin hátíðarhöldum hvers árs hefur verið að mála götur borgarinnar í regnbogans litum með einum eða öðrum hætti. Að þessu sinni var málaður varanlegur regnbogafáni og eins og Hrefna Þórarinsdóttir forstöðukona hinsegin félagsmiðstöðvarinnar sagði við opnunina að þá hefur ekkert bent til þess að í húsinu sé hinsegin félagsmiðstöð og að hana sæki um eitt hundrað ungmenni í hverri viku. „Ég er stolt og meyr að hér sé í dag málaður svokallaður inngildandi framfarafáni fyrir framan félagsmiðstöðina, hjarta samfélags hinsegin ungmenna,“ sagði Hrefna.

Snæ Humadóttir

Snæ Humadóttir segir Hinsegin félagsmiðstöðina hafa leikið mikilvægt hlutverk í sínu lífi.

Mikilvægt skjól í harðnandi orðræðu

Snæ Humadóttir sem sótt hefur hinsegin félagsmiðstöðina á hverjum þriðjudegi í þrjú ár sagði viðstöddum frá því hversu mikilvægt hlutverk Hinsegin félagsmiðstöðin hefði leikið í lífi hennar síðustu ár. Þar hafi hún eignast vini, fyrirmyndir og í raun fjölskyldu í því fallega samfélagi sem skapast hefur í félagsmiðstöðinni. Þó að hún sjálf fái fullan stuðning frá sinni fjölskyldu búi því miður ekki allir svo vel. Fyrir þá sé Hinsegin félagsmiðstöðin mjög mikilvæg enda veiti hún líka skjól á sama tíma og orðræðan hafi harðnað.

Fyrir ungmenni af landinu öllu

Einar Þorsteinsson borgarstjóri tók einnig til máls og setti Hinsegin daga formlega en að því loknu tóku margir þátt í því að mála Hinsegin fánann með varanlegri málningu. Hinsegin félagsmiðstöð S’78 og Tjarnarinnar við Barónsstíg er mikilvægt stoð í lífi hinsegin ungmenna af öllu höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Áætlað er að um 40% ungmennanna sem sækja félagsmiðstöðina komi frá öðrum sveitarfélögum og eru öll velkomin.