Heiti potturinn í Laugardal og Háaleiti

""

Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsemi á fyrri hluta ársins 2020. Styrkveitingin er til þess að efla félagsauð fullorðinna í Bústaða-, Háaleitis- og Laugardalshverfi.

Áhersla verður lögð á að veita styrki til verkefna sem eru opin öllum þátttakendum í félagsstarfi fullorðinna í hverfunum. Verkefnin þurfa að falla að hlutverki félagsmiðstöðvanna eða teljast á annan hátt vera í samræmi við stefnumörkun og áherslur í félagsstarfi.

Umsóknum skulu fylgja:

• Nafn, kennitala og heimilisfang ábyrgðaraðila.

• Markmið verkefnis.

• Tíma- og verkáætlun.

• Önnur fjármögnun verkefnis og gögn því til stuðnings ef við á.

• Aðrar upplýsingar ef við á.

Hægt er að nálgast eyðublöð í félagsmiðstöðvunum Dalbraut 18-20, Dalbraut 21-27, Furugerði 1, Hvassaleiti 56-58, Hæðargarði 31, Norðurbrún 1 og Sléttuvegi 11.

Umsóknir þurfa að berast fyrir 30. janúar 2020 til að teljast gildar. Öllum umsóknum verður svarað.

Athugið! Styrkþegar skulu skila inn greinargerð fyrir 27. september 2020.

Nánari upplýsingar veita ábyrgðarmenn:

Helga Björk Haraldsdóttir 

Bryndís Hreiðarsdóttir 

Berglind Anna Aradóttir 

Umsókn um styrk úr Heita pottinum