Haukur Ingvarsson hlýtur b​​​​ókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2018

Mannlíf Menning og listir

""

Haukur Ingvarsson hlaut í dag 18. október Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2018 fyrir ljóðahandritið Vistarverur. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, staðgengill borgarstjóra, veitti verðlaunin sem nema 800 þúsund krónum.

Haukur Ingvarsson er fæddur árið 1979. Hann lauk meistaraprófi í íslenskum bókmenntum árið 2005 og hefur síðan fengist við ritstörf og dagskrárgerð í útvarpi. Hann leggur nú stund á doktorsnám í íslenskum bókmenntum og skrifar um viðtökur Williams Faulkner á Íslandi.

Fyrsta ljóðabók Hauks, Niðurfall og þættir af hinum dularfulla Manga, kom út 2005 og í kjölfarið komu fræðibókin Andlitsdrættir samtíðarinnar: Síðustu skáldsögur Halldórs Laxness (2009) og skáldsagan Nóvember 1976 (2011).

Alls bárust 60 óbirt ljóðahandrit undir dulnefni. Dómnefndina skipuðu Úlfhildur Dagsdóttir formaður, Þórarinn Eldjárn og Börkur Gunnarson.   

Í niðurstöðu dómnefndar segir: ,, Í ljóðabók Hauks Ingólfssonar eru margar Vistarverur. Orðið sjálft, vistarvera, gefur til kynna tilfinningu fyrir stað og íbúa auk þess að vísa til tilvistarinnar sjálfrar og stöðu verunnar í henni. Allt þetta kemur saman í ljóðunum en þau einkennast af vangaveltum um tengsl hins efnilega og hins andlega, með áherslu á samfellu þessa.

Þannig verða byggingar og skip framlenging af sjálfi ljóðmælanda, minningar og draumar taka á sig áþreifanlega mynd í hinum ýmsu vistarverum og veruleikinn sjálfur er jafnframt bundin upplifunum og tengslum við stað og stundir. Ljóðmælandi er á stundum líkt og einskonar draugur í eigin tilveru, hann veltir fyrir sér stöðu sinni í umhverfi sínu og sjálfsmynd og gluggar í stórar spurningar jafnt sem smáar.

Tóntegundin einkennist af hógværð í bland við íhygli og kímni. Heildarmyndin er falleg, margræð og fjölkunnug.“

Reykjavíkurborg óskar Hauki til hamingju með verðlaunin.