Hækkun á styrk svifryks við umferðargötur

Hverfisskipulag Umhverfi

""

Svifryksmengun er töluvert yfir heilsuverndarmörkum nú síðdegis 29. desember 

Styrkur svifryks (PM10) hefur farið hækkandi það sem af er degi 29. desember skv. mælingum í mælistöðvum við Grensásveg og Hringbraut. Klukkan 14:30 var hálftímagildi svifryks við Grensásveg 204 míkrógrömm á rúmmetra og verður styrkur svifryks að öllum líkindum yfir sólarhringsheilsuverndarmörkum. Í mælistöð við Hringbraut var hálftímagildið á sama tíma 100 míkrógrömm á rúmmetra. Nú er hægur vindur og kalt, götur þurrar og litlar líkur á úrkomu næstu daga er búist við svipuðum veðurfarsaðstæðum og því líkur á svifryksmengun við umferðargötur.

Sólarhrings heilsuverndarmörkin fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist  í nágrenni stórra umferðagatna.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á http://reykjavik.is/thjonusta/loftgaedi-i-reykjavik. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík. Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur eru nú staðsettar við leikskólann Grænuborg við Eiríksgötu og við Hringbraut 26.