Hækkun á styrk svifryks í borginni

Heilbrigðiseftirlit

Svifryk

Styrkur svifryks (PM10) er hár á nokkrum mælistöðvum í borginni í kjölfar morgunumferðar í dag, 29. nóvember.

Vindhraði var aðeins um 2 m/s skv. athugun á vef Veðurstofunnar kl. 12 og er gert ráð fyrir hægum vindi í allan dag. Klukkan 12:00 var klukkustundargildi svifryks við Grensásveg 158 míkrógrömm á rúmmetra og 145 míkrógrömm á rúmmetra í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þar sem aðeins er hægur vindur, götur þurrar og ekki líkur á úrkomu í dag er líklegt að styrkur svifryks fari hækkandi í tengslum við eftirmiðdagsumferðina. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga og því líkur á að styrkur svifryks verði áfram hár og þjóðvegir í þéttbýli og helstu stofngötur verða því rykbundnar í nótt til að draga úr uppþyrlun. Rykbinding er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar.

Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins ef unnt er, s.s. geyma ferðir sem ekki eru aðkallandi, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Skorað er á fyrirtæki að hvetja starfsfólk til að vinna fjarvinnu sé þess kostur og draga úr akstri ef hægt er. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu. 

Loftgæðavefur Umhverfisstofnunar metur loftgæði með eftirfarandi litakóða: 
 

Litakóði

Skýring:

Mjög góð = Lítil sem engin loftmengun. Líklega engin heilsufarsleg áhrif.

Góð = Lítilsháttar loftmengun. Lítil sem engin heilsufarsleg áhrif.

Sæmileg = Nokkur loftmengun. Mjög viðkvæmir einstaklingar og einstaklingar með astma eða aðra undirliggjandi lungna- og/eða hjartasjúkdóma geta fundið fyrir einkennum vegna aukins styrks loftmengunarefna í andrúmslofti.
 

Svifryk er fínasta gerð rykagna sem eiga greiða leið í öndunarfærin en heilsuverndarmörk miðast við 50 míkrógrömm á rúmmetra á sólarhring fyrir PM 10 (svifagnir um 10 míkrógrömm að stærð). Helsti uppruni svifryks er uppspænt malbik, sót aðallega frá díselbruna, jarðvegsagnir, salt, aska o.fl.