Hækkun á styrk svifryks í borginni

""

Styrkur svifryks (PM10) hefur verið hár í tengslum við morgunumferðina í dag, 16. mars.

Klukkan 10:00 var klukkustundargildi svifryks við Grensásveg 160 míkrógrömm á rúmmetra, á sama tíma var styrkurinn 52,2 míkrógrömm á rúmmetra við leikskólann Lund og 80,8 míkrógrömm á rúmmetra við Vesturbæjarlaug. Styrkur er tekin að falla aftur en þar sem aðeins er hægur vindur, götur þurrar og ekki líkur á úrkomu í dag er líklegt er að styrkur svifryks fari aftur hækkandi í tengslum við álagstíma í umferðinni. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga og því líkur á að styrkur svifryks verði áfram hár. 

Almenningur er því hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins ef unnt er, s.s. geyma ferðir sem ekki eru aðkallandi, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Skorað er á fyrirtæki að hvetja starfsfólk til að vinna fjarvinnu sé þess kostur og draga úr akstri ef hægt er. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is.