Hækkun á styrk svifryks í borginni

Heilbrigðiseftirlit

Tveir bílar að keyra á götu, horft ofan á þá og þeir eru að keyra "að" áhorfandanum.

Styrkur svifryks (PM10) í borginni hefur verið hár í tengslum við umferðartoppa það sem af er degi. Hæsta klukkustundagildi við Grensásveg var 120 míkrógrömm á rúmmetra kl. 9:00 og á sama tíma kom hæsta gildi við leikskólann Lund,  128,5 míkrógrömm á rúmmetra en þetta er einmitt á háannatíma umferðar í morgun. Í mælistöð Faxaflóahafna við Laugarnes var hæsta gildið 106,1 míkrógrömm á rúmmetra kl. 11 og hæsta gildið við Vesturbæjarlaug var 89,8 míkrógrömm á rúmmetra kl. 10. Hækkaður styrkur orsakast af því að í dag er hægur vindur í borginni og kalt, götur þurrar og engin úrkoma. Því nær umferðin að þyrla upp ryki sem hangir svo í loftinu þar sem vindhraðinn er of lítill til að færa það á brott.

Varað við útivist og áreynslu við miklar umferðargötur

Í ljósi framangreinds er líklegt að svifryk verði hátt í tengslum við eftirmiðdagsumferðina. Almenningur er því hvattur til að draga úr notkun einkabílsins ef unnt er, til dæmis geyma ferðir sem ekki eru aðkallandi, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist og áreynslu, svo sem íþróttaiðkun, í nágrenni stórra umferðargatna.

Gert er ráð fyrir meiri vindi á morgun og því minni líkur á að þetta verði viðvarandi ástand.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu.