Hækkun á styrk svifryks í borginni

Samgöngur Umhverfi

""

Styrkur svifryks (PM10) er hár í borginni í dag. Klukkan 13:00 var klukkustundargildi svifryks við Grensásveg 86 míkrógrömm á rúmmetra en fór yfir 100 míkrógrömm á rúmmetra á háannatíma umferðar í morgun. Í mælistöð á gatnamótum Bústaðarvegar og Háaleitisbrautar var klukkutímagildið á sama tíma 58 míkrógrömm á rúmmetra. Nú er hægur vindur og kalt, götur þurrar og ekki líkur á úrkomu í dag svo líklegt er að styrkur svifryks fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk sem eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga og því líkur á að styrkur svifryks verði áfram hár. 

Íbúar eru hvattir til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta.

Þau sem eru viðkvæm fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í nágrenni stórra umferðagatna.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu.