Hækkun á styrk svifryks í borginni

Samgöngur Umhverfi

""

Styrkur svifryks (PM10) er hár í borginni í dag og fólk hvatt til að leggja einkabílnum.

Á hádegi var styrkur svifryks við Grensásveg 148 míkrógrömm á rúmmetra eða mjög slæm loftgæði. Annars staðar voru þau slæm eða miðlungs en í mælistöð í Fjölskyldu- og húsdýragarði var klukkutímagildið á hádegi 68,1 míkrógrömm á rúmmetra og í mælistöð við Vesturbæjarlaug 61,7 míkrógrömm á rúmmetra. Í mælistöð á gatnamótum Bústaðarvegar og Háaleitisbrautar var klukkustundargildið lægra, 41,1 míkrógrömm á rúmmetra en var hærra fyrr um morguninn.

Nú er hægur vindur og kalt, götur þurrar og ekki líkur á úrkomu í dag svo líklegt er að styrkur svifryks fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk sem eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta.

Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í nágrenni stórra umferðagatna.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu.