Hækkun á styrk köfnunarefnisdíoxíðs og svifryks í borginni

Heilbrigðiseftirlit

""

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) og svifryks (PM10) er hár við Grensásveg í dag, 20. desember skv. mælingum. Klukkan 13 var styrkur svifryks 236 míkrógrömm á rúmmetra og styrkur köfnunarefnisdíoxíðs 108 míkrógrömm á rúmmetra.

Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og hitastigi við frostmark í dag og næstu daga og því líklegt að styrkur efnanna haldist hár að minnsta kosti þegar umferð er þung.  Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra og fyrir svifryk 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Köfnunarefnisdíoxíðs mengun er beintengd umferðinni í stilltu veðri eins og er í dag. Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er mest. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna.Einnig ættu bílstjórar að hvíla bílinn á morgun - sé þess nokkur kostur. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.

Hægt er að fylgjast með styrk mengandi efna á loftgæði.is.