Grindavíkurbær heiðursgestur Menningarnætur 2024

Tónleikar á Arnarhóli á Menningarnótt
Menningarnótt 2023

Grindavíkurbær verður heiðursgestur Menningarnætur Reykjavíkurborgar þann 24. ágúst 2024. Tilefnið er vinatengsl bæjarfélaganna og 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar í ár. 

Bæjarstjórn Grindavíkur hefur þegið boðið og þakkar borgarstjóra og borgarráði Reykjavíkur þann heiður sem Grindavíkurbæ er sýndur af þessu tilefni. 

Einar Þorsteinsson, borgarstjóri, fagnar þátttöku Grindavíkurbæjar.

 „Það er okkur mikill heiður að fá að bjóða Grindvíkingum að vera heiðursgestir á Menningarnótt í ár. Grindavíkingar hafa gengið í gegnum miklar hremmingar, sem því miður sér ekki fyrir endann á. Þegar á reynir er mikilvægt að sýna stuðning og efla vinatengsl. Grindavík fagnar 50 ára kaupstaðarafmæli sínu í ár og það er fullt tilefni til þess að sýna samtakamátt og fagna því saman.“

Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar og er hátíðin ávallt haldin fyrsta laugardag eftir 18. ágúst en þann dag árið 1786 fékk Reykjavíkurborg kaupstaðarréttindi. Hátíðin var haldin í fyrsta sinn árið 1996 og hefur frá upphafi skipað mikilvægan sess í viðburðahaldi í borginni þar sem listafólk, íbúar og rekstraraðilar fá tækifæri til að bjóða til veislu í miðborginni. 

Sveitarfélög eða félagasamtök hafa í gegnum árin verið heiðursgestir á Menningarnótt í þeim hópi eru meðal annarra Ísafjörður, Akranes, Þórshöfn í Færeyjum, Blindrafélagið, stuðningssamtökin Support for Ukraine Iceland og í fyrra var það Vestmannaeyjabær sem þá hélt upp á að 50 ár voru liðin frá goslokum.