Nýsköpun í Reykjavík. Metfjöldi umsókna barst í samfélagslega vaxtarrýmið Snjallræði í ár. Nær 60 umsóknir voru gildar og var 11 teymum boðin þátttaka í þessu 16 vikna vaxtarými.
Vaxtarrýmið er í samstarfi við MIT designX og er þungamiðja þess vinnustofur með sérfræðingum frá MIT. Þátttakendur fá einnig fræðslu og þjálfun frá innlendum og erlendum sérfræðingum á sviði samfélagsmála og nýsköpunar og eiga fundi með reyndum mentorum. Lokaafurðir verkefna verða kynnt á viðburði Snjallræðis 13. desember.
Áhersla er lögð á að velja verkefni sem styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og ná yfir svið eins og heilbrigðisþjónustu, velferðartækni, menntakerfi og jafnréttismál. Verkefni sem voru valin til þátttöku í ár eru:
- Animara: Hannar hentug og stílhrein föt fyrir einstaklinga með hreyfihömlun, sem eykur sjálfstæði og minnkar álag á umönnunaraðila.
- SKIMA: Þróar hugbúnað til að einfalda sálfræðilegar athuganir fyrir börn, sem bætir nákvæmni og skilvirkni í greiningu.
- CodonRed: Skimar eftir stökkbreytingum og skemmdum í erfðaefni.
- Velferðalag: Miðar að því að bæta líðan og auka almenna þekkingu með jákvæðum inngripum, byggð á jákvæðri sálfræði.
- CHEMeFuel: Þróar orkurík lífeldsneyti úr úrgangsefnum og grænu metanóli fyrir sjálfbæran flugrekstur, með það að markmiði að draga úr kolefnislosun.
- Vitkast: Skólasamfélagið hefur lengi kallað eftir betra og fjölbreyttara námsefni. Vitkast er gagnvirkur námsvefur með verkefnum sem stækkar verkfærakistu kennara til að ýta undir áhuga nemenda og styrkja færni þeirra til framtíðar.
- Textílbarinn: Safnar og selur ónotaðan textíl auk þess að kenna hvernig má gera við og endurnýta slíkan textíl til að draga úr úrgangi.
- NúnaTrix: Býr til fræðslutölvuleiki fyrir börn sem þurfa að gangast undir læknismeðferð og rannsóknir, með það að markmiði að minnka kvíða og bæta heilsulæsi.
- Heillaspor Center: Stefnir á stofnun miðstöðvar á Íslandi fyrir snemmtæka meðferð við átröskunum.
- ALDA Clinical Technologies: Þróar máltæknitól fyrir snemmtæka greiningu og eftirfylgd með taugahrörnunarsjúkdómum og málröskunum í minni tungumálum.
- Hvað nú?: Einfaldar syrgjendum úrlausn hinna fjölmörgu verkefna sem fylgja andláti ástvinar með því að auðvelda aðgengi að upplýsingum og ráðgjöf.
Vaxtarrýmið var sett á laggirnar árið 2018 til að styðja við öflug teymi sem vinna að lausnum á samfélagslegum áskorunum samtímans. Það er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri, auk samstarfs við MITdesignX þar sem sérfræðingar frá MIT deila þekkingu sinni með þátttakendum. Þátttakendur fá aðgang að fræðslu og þjálfun frá bæði innlendum og erlendum sérfræðingum á sviði samfélagsmála og nýsköpunar, auk fundar með reyndum mentorum. Verkefnið er styrkt af Reykjavíkurborg og Marel.