Götulokanir í miðborginni 1. maí

Götulokanir 1. maí 2024
Götulokanir 1. maí 2024

Vakin er athygli á lokunum í miðborginni á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins á morgun.

Bifhjólasamtök lýðveldisins Sniglarnir verða með hópakstur frá Grandagarði klukkan 12:00 sem endar við Háskólann í Reykjavík um klukkan 13:00. Viðamiklar götulokanir eru í tengslum við hópaksturinn og eru vegfarendur vinsamlegast beðnir um að skoða kortið hér að ofan vel.

Félagsfólk í VR er með fjölskylduskemmtun á Klambratúni og verður gengið þaðan að Skólavörðuholti klukkan 13:00.

Kröfuganga verkalýðsins fer svo frá Skólavörðuholti klukkan 13:30 og verður gengið niður á Ingólfstorg þar sem fram fer dagskrá í tengslum við daginn.