Góð hljóðstjórnun á Secret Solstice 2015

Heilbrigðiseftirlit Mannlíf

""

Fulltrúar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur mældu hljóðstig á viðburðum tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice þá þrjá daga sem hátíðin stóð.  Jafnframt var fylgst með almennri umgengni, ástandi í matarvögnum og fleira í þeim dúr.

Samkvæmt mælingum eftirlitsins fór hljóðstig ekki yfir mörk reglugerðar um hávaða nr. 724 frá 2008 inni á hátíðarsvæðinu.  Einnig var farið í eitt heimahús þar sem íbúi hafði óskað eftir hávaðamælingu vegna reynslu sinnar frá fyrra ári.  Ekki þótti ástæða til að mæla hljóðstig í eða við húsið þar sem skynmat dugði til að meta að ekki var um hávaða eða ónæði að ræða. Þetta bendir til þess að hljóðstjórnun á viðburðunum hafi verið góð. Skipulag svæðisins var breytt frá fyrra ári en nú snéru tónleikasviðin utanhúss í átt að Suðurlandsbraut.  Fáar kvartanir hafa borist Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur vegna hávaða frá hátíðinni en þær eru frá íbúum sunnan svæðisins.  Þá barst ábending frá íbúa í Hvaleyrarholti í Hafnarfirði auk Garðabæ og Kópavogi um að þar heyrðist ómur frá tónleikunum.

Fjöldi matarvagna var á svæðinu og var farið í eftirlit hjá þeim. Gerð var alvarleg athugasemd við einn matarvagn þar sem umgengni og meðhöndlun matvæla var ófullnægjandi.  Kröfum um úrbætur var strax orðið við.  Starfsfólk hátíðarinnar sá um að tína upp rusl inni á svæðinu en hinsvegar hefði mátt fjölga ruslaílátum við göngustíga utan svæðisins þessa daga.  Almennt var umgengni um svæðið góð. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur telur að þrátt fyrir að hljóðstig hafi ekki farið yfir mörk reglugerðar inni á svæðinu megi gera enn betur til að takmarka ónæði í nágrenninu og mun eftirlitið fara yfir hljóðvistarmál með aðstandendum hátíðarinnar verði framhald á hátíðinni á þessum stað.