Gjaldskrá sundlauga breytt til að sækja tekjur af eldri ferðamönnum

Íþróttir og útivist

Laugardalslaug á fallegum sumardegi
Loftmynd af Laugardalslaug að sumri til

Gjaldskrá sundlauga Reykjavíkurborgar verður breytt með það að markmiði að sækja tekjur af eldri ferðamönnum sem hingað til hafa notið gjaldfrjáls aðgengis að sundlaugum borgarinnar. Tekið verður upp árskort fyrir eldri borgara á verði sem jafngildir þremur stökum ferðum fullorðinna í sund. Stefnt er að því að auka stuðning við heilsueflingu eldra fólks í samstarfi við íþróttafélögin í borginni. 

Samkvæmt tillögu menningar,- íþrótta- og tómstundaráðs, sem samþykkt var í morgun og tekin verður fyrir í borgarráði, munu sundgestir sem náð hafa 67 ára aldri greiða stakt gjald fullorðinna og gjaldflokkurinn „eldri borgarar“ verður tekinn úr gjaldskránni.   

Verð á árskorti fyrir eldri borgara mun nema gjaldi þriggja sundferða, eða fjögur þúsund krónum samkvæmt núverandi gjaldskrá og mun breytingin taka gildi frá fyrsta ágúst næstkomandi. Ný árskort fyrir eldri borgara taka gildi fyrsta október næstkomandi. Fram að þeim tíma geta eldri borgarar framvísað sundkortum sem nú eru í gildi. Öryrkjar fá áfram frían aðgang að sundlaugum borgarinnar gegn framvísun öryrkjakorts. 

Um 14 þúsund eldri ferðamenn í sund árlega 

Sund er mikilvæg heilsubót og mikill fjöldi fólks sækir átta sundlaugar Reykjavíkur. Margir eldri borgarar eru fastagestir og hafa þeir fengið frían aðgang að laugum borgarinnar lengi. Mikilvægt er að tryggja þessum hópi áfram gott aðgengi að laugunum og er markmið gjaldskrárbreytingar að tryggja að eldri ferðamenn greiði fyrir aðgang að þessari mikilvægu þjónustu.  

Um 14 þúsund ferðamenn sem náð hafa 67 ára aldri sækja sundlaugar Reykjavíkur á hverju ári og verður borgin því af tekjum sem geta numið um 18,5 milljónum króna árlega. Sveitarfélögum er óheimilt að mismuna gestum eftir búsetu og er því ekki hægt að veita einungis eldri Reykvíkingum frían aðgang að sundlaugum borgarinnar. Heimilt er hins vegar að bjóða upp á gjaldskrá með mismunandi gjaldflokka og veita afsláttarkjör, til dæmis með útgáfu árskorta.  

Aukinn stuðningur við heilsueflingu eldra fólks 

Reykjavíkurborg greiðir niður sundferðir allra gesta og greiðir að meðaltali 1.200 krónur með hverjum gesti sem sækir sundlaugarnar, eða um 50% af stöku gjaldi.  Með tillögunni er áætlað að tekjur Reykjavíkurborgar geti aukist um 30 milljónir króna á ári en samhliða tillögunni vinnur menningar,- íþrótta- og tómstundaráð að því við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár að móta tillögu um að hluta þessara tekna verði varið til að auka stuðning við heilsueflingu eldra fólks í samstarfi við íþróttafélög borgarinnar. Þess má geta að ráðið hefur, með samþykkt borgarráðs, skipað sérstakan stýrihóp til að fara yfir gjaldskrár stofnana menningar- og íþróttasviðs, með það að markmiði að einfalda þær og rýna möguleika á að auka tekjur borgarinnar. Hópurinn stefnir að því að skila af sér tillögum í haust.