Fyrsta skóflustunga tekin að íþróttamiðstöð í Úlfarsárdal

Umhverfi Skóli og frístund

""

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og ungir iðkendur í Fram tóku í dag fyrstu skóflustungu að nýrri íþróttamiðstöð í Úlfarsárdal. Framkvæmdir hefjast strax og verklok eru áætluð 2022.

Fjölnota íþróttahús, áhorfendastúka fyrir aðalleikvang í knattspyrnu, minni íþróttasalir, félags- og þjónustuaðstaða fyrir starfsfólk, þjálfara og félagsmenn, búningsrými ásamt samkomusal og fundaraðstöðu eru hlutar af íþróttamiðstöðinni. Hún verður 7.300 fermetrar á þremur hæðum með aðalinngang við sameiginlegt hverfistorg  við Úlfarsbraut. Kostnaður við framkvæmdina er áætlaður 4,6 milljarðar.

Íþróttamiðstöðin er austasti hluti bygginga við Úlfarsbraut sem þjóna hverfinu.  Í vestari hluta bygginganna eru leik- og grunnskóli ásamt frístundamiðstöð, menningarmiðstöð og sundlaug sem nú eru ýmist fullbyggðar eða í uppbyggingu. Íþróttaaðstaðan nýja verður nýtt af skólum í hverfinu.

Allar þessar framkvæmdir eru í umhverfisvottuðu ferli samkvæmt BREEAM, en það er alþjóðlegt vottunarkerfi sem metur visthæfi bygginga.

Fullbúin handboltahöll og fjölbreyttir salir   

Íþróttamiðstöðin mun hýsa fullbúna handboltahöll með keppnisvelli og áhorfendapöllum fyrir allt að 1.300 manns. Vellinum má skipta upp í tvo handboltavelli í fullri stærð. Í húsinu verða þar að auki lyftingasalur, fjölnota æfingarsalur og bardagasalur. Búningsklefar eru 15 talsins, þar af sérklefi fyrir hreyfihamlaða iðkendur.

Mikið hefur verið lagt upp úr félagsrýmum íþróttahússins og verður þar að finna fjölbreytta sali að stærð og gerð, á öllum hæðum hússins. Þar verður stór samkomusalur ásamt framreiðslueldhúsi og þaksvölum, tveir fjölnotasalir með útsýni yfir keppnisvelli og fyrirlestrarsalur. Aðalaðkomurýmið er skemmtilegt með deildarverslun og veitingasölu, og þaðan er gengt út á svalagang sem umlykur handboltavöllinn. Innangengt verður milli íþróttahúss og menningarmiðstöðvar á 1. hæð byggingar.

Nýr knattspyrnuvöllur verður gervigrasvöllur, með stúku sem rýmir 1.600 áhorfendur. Góðir grasæfingavellir verða einnig á svæðinu.

Nánari upplýsingar: