![Mynd af hornhúsi við Laugaveg og Skólavörðustíg. Í forgrunni eru auðar götur og bílastæðamerki.](/sites/default/files/styles/landscape_small/public/2022-12/Reykjav%C3%ADk%20b%C3%ADlast%C3%A6%C3%B0i.png?h=6ba58dca&itok=ydx6vVC2)
Fyrirframgreidd kort Bílastæðasjóðs verða ekki lengur í boði en í staðinn verður vísað á aðrar rafrænar greiðslulausnir.
Svokölluð P-kort hafa verið nýtt af litlum hluta viðskiptavina Bílastæðasjóðs en þau hafa ekki fylgt rafrænni þróun og nýtast til að mynda ekki í bílastæðahúsum. Ekki er lengur hægt að fylla á þessi kort.
Hvað er best að nota í staðinn?
- Hægt er að borga með greiðsluforritum í síma eins og Parka, EasyPark eða SíminnPay. Í einhverjum tilvikum er boðið upp á fyrirtækjalausnir en best er að hafa samband við viðkomandi þjónustufyrirtæki til að athuga hvað hentar þér.