Frítt í sund og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn á sumardaginn fyrsta

Íþróttir og útivist Mannlíf

Krakkar í klifurgrind

Reykjavíkurborg býður frítt í sund og frítt í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í tilefni af sumarkomunni á morgun. Skátarnir verða með skemmtiatriði við sundlaugarnar. 

FRÍTT verður í sundlaugar í Reykjavík og Fjölskyldu og húsdýragarðinn fyrir alla, allan daginn á morgun sumardaginn fyrsta.

Skátarnir verða með hoppukastala og allskonar skemmtilegt skátafjör við sundlaugarnar og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á eftirfarandi tímum:

Árbæjarlaug kl. 13:00-16:00

Fjölskyldu- og húsdýragarð kl. 11:00-14:00

Grafarvogslaug kl. 13:00-16:00

Breiðholtslaug kl. 10:00-12:00

Sundhöll Reykjavíkur kl. 13:00-16:00

Laugardalslaug kl. 13:00-16:00

Vesturbæjarlaug kl. 11:00-13:00

Bústaðahverfi verður sumarhátíð þar sem liðsmenn Víkings grilla pylsur, farið í skrúðgöngu, boðið upp á skemmtidagskrá í Bústaðakirkju og hopp og hí í félagsheimilinu Víkinni. Sjá dagskrá sumardagsins fyrsta í Bústaðahverfi

Í Grafarholti hefst Framhlaupið í Leirdalnum klukkan 10.00, gestir fá að spreyta sig á frisbígolfi,  klukkan 11.00 verður dýrablessun í Guðríðarkirkju og 12.30 verður skrúðganga sem leggur af stað frá Sæmundarskóla, með lúðrasveit Grafarvogs og Grafarholts í broddi fylkingar. Boðið verður upp á alls kyns skemmtiatriði í Guðríðarkirkju, Friðrik Dór tekur lagið og haldið verður bingó. Grafarholtsbúar kynnið ykkur dagskrá sumardagsins fyrsta í Grafarholti.

Í Hólmaseli í Breiðholti verður skemmtidagskrá frá klukkan 13.00 -16:00. Boðið verður upp á andlitsmálningu, hoppukastala, ratleik, lopasleikjó, grillaðar pylsur. Þá koma fram:
13:00 - Leikhópurinn Lotta
14:00 - BMX brós
15:00 - Siguratriði Breiðholt Got Talent

Gleðilegt sumar!