Framkvæmdir vegna Vetrargarðs í Breiðholti eru hafnar. Skíðalyftan á staðnum, hefur verið tekin niður tímabundið á meðan framkvæmdum stendur. Svæðið verður mótað upp á nýtt og skíðaleiðum fjölgað úr einni í þrjár. Búist er við að hægt verði að setja aftur upp skíðalyftu sumarið 2025 samhliða annarri uppbyggingu á svæðinu tengt garðinum.
Hjólagarður á sumrin
Vetrargarðurinn er hluti af hverfisskipulagi fyrir Neðra-Breiðholt, Seljahverfi og Efra-Breiðholt, sem tók formlega gildi vorið 2022.
Vetrargarðurinn verður framtíðar fjölskyldugarður fyrir vetraríþróttir í Reykjavík auk hjólagarðs á sumrin. Áhersla er áfram á þjónusta börn og fjölskyldur og að miða starfsemina við byrjendur. Stefnt er á að tryggja samfellda þjónustu og rekstur allan ársins hring.
Megináhersla garðsins er að stuðla að aukinni hreyfingu og útiveru meðal borgarbúa. Auk aðgengis fyrir almenning er ætlunin að bjóða leik- og grunnskólabörnum á skíði á skólatíma. Skíðafélögin hér á höfuðborgarsvæðinu ætla að nýta sér garðinn til æfinga fyrir yngstu kynslóðina.
Verið að flytja efni á svæðið
Svæðið afmarkast af fyrirhuguðum Arnarnesvegi í austri, íbúðarhverfi við Jakasel í suðri, Breiðholtsbraut í norðri og athafnasvæði við Jafnasel í vestri. Svæðið liggur í um 99 m hæð yfir sjávarmáli þar sem það er lægst en fer hæst í um 130 m hæð. Sem stendur er verið er að flytja efni á svæðið til að móta það upp á nýtt.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa í sumar var samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir Vetrargarðinn í Breiðholti, nánar tiltekið fyrir móttöku á jarðvegi og mótun skíðabrekkna og lands innan svæðisins. Gildistími framkvæmdaleyfisins er til 31. janúar 2025.
- Hægt er að fylgjast með verkinu á framkvæmdasíðu verkefnisins.