Framkvæmdir hefjast í Tryggvagötu við Hafnarhúsið

Samgöngur Umhverfi

""

Hafist var handa við fyrsta áfanga framkvæmdar Reykjavíkurborgar og Veitna við endurnýjun Tryggvagötu síðastliðið sumar. Nú er komið að því að hefja næsta áfanga verksins sem takmarkast við gatnamót hennar við Naustin annars vegar og Grófarinnar hins vegar.

Aðgengi gangandi og hjólandi á svæðinu er tryggt en haldið verður opinni gönguleið meðfram Listasafni Reykjavíkur. Akandi umferð um Tryggvagötu verður leidd um hjáleið bak við Hafnarhúsið framhjá framkvæmdasvæðinu eins og sjá má í skýringarmynd sem fylgir með fréttinni.

Aðkoma að Listasafni Reykjavíkur breytist ekki

Uppmokstur hefst á þessum hluta Tryggvagötunnar í vikunni. Ekki er grafið alla leið að Grófinni í þessum áfanga og verður því aðkoma gesta að Listasafninu eins og venjulega og aðgengi rekstraraðila tryggt. Hagstæð veðurskilyrði eru ástæða þess að hægt er að byrja á þessum áfanga nú. Þetta ætti að gefa rýmri tíma til að rannsaka og skrásetja þær fornleifar sem mögulega liggja þarna í jörðu.

Veðurfarið leyfir hins vegar ekki að farið sé strax af stað með yfirborðsfrágang á þeim hluta Tryggvagötu sem liggur við Tollhúsið. Ekki er æskilegt að vinna við snjóbræðslukerfi á meðan frost er enn í jörðu og þar af leiðandi er ekki hægt að ljúka yfirborðsfrágangi sem stendur. Farið verður í þennan frágang um leið og færi gefst.

Unnið að nákvæmri áfangaskiptingu og verkáætlun

Á næstum vikum verður birt ítarlegri tilkynning með nánari upplýsingum um heildareftirstöðvar verksins og fyrirkomulag en verið er að vinna að nákvæmri áfangaskiptingu og verkáætlun.

Verkefnið er hluti af því að gera borgina okkar betri, mannvænni, fallegri og aðgengilegri fyrir virka ferðamáta. Hægt er að lesa aðrar fréttir af framkvæmdunum, skoða framkvæmdasjá, bæklinga og myndir á heimasíðu verkefnisins.

Skoða kort yfir göngu- og akstursleiðir á pdf-formi.