Framkvæmdir hafnar á Laugardalsvelli

Íþróttir og útivist

Borgarstjóri, formaður KSÍ og mennta- og barnamálaráðherra með skóflur á Laugardalsvelli

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Einar Þorsteinsson borgarstjóri og Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ tóku fyrstu skóflustungurnar á Laugardalsvelli í dag. Þar með er fyrsti áfangi í uppbyggingu leikvangsins hafinn. Grasi Laugardalsvallar verður skipt út fyrir blendigrasi (svokallað hybrid-gras) og hitunarkerfi verður sett undir völlinn.  

Markmiðið er að gera Laugardalsvöll leikfæran mun stærri hluta ársins en nú er. Áfanganum verður lokið fyrir landsleiki í knattspyrnu næsta sumar. Laugardalsvöllur verður byggður upp sem knattspyrnuvöllur eingöngu, og mun nýr þjóðarleikvangur í frjálsíþróttum rísa á nýjum stað í Laugardal. 

Forsætisráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, Reykjavíkurborg, Knattspyrnusamband Íslands og Frjálsíþróttasamband Íslands undirrituðu viljayfirlýsingu þess efnis í byrjun september

Ríki og borg leggja hvort um sig allt að 250 milljónir króna í framkvæmd fyrsta áfanga og annast Knattspyrnusamband Íslands verkið. 

Framkvæmdin markar fyrsta skref í uppbyggingu Laugardalsvallar sem framtíðarþjóðarleikvangs í knattspyrnu. Með uppbyggingunni vilja stjórnvöld styðja við sívaxandi afrek og árangur sem kallar á bætta aðstöðu, aðstöðu sem uppfyllir kröfur alþjóðlegra íþróttasambanda til alþjóðlegrar keppni.