Undirritun viljayfirlýsingar um uppbyggingu Laugardalsvallar og nýjan frjálsíþróttaleikvang

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Einar Þorsteinsson borgarstjóri, Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ og Freyr Ólafsson, formaður FRÍ og Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Einar Þorsteinsson borgarstjóri, Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ og Freyr Ólafsson, formaður Frjálsíþróttasambands Íslands og Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra við undirritun viljayfirlýsingar á Laugardalsvelli í dag

Forsætisráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, borgarstjóri, formaður Knattspyrnusambands Íslands og formaður Frjálsíþróttasamband Íslands undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framtíðaruppbyggingu þjóðarleikvanga fyrir knattspyrnu og frjálsíþróttir í Laugardal.

Með yfirlýsingunni er stefnt að uppbyggingu tveggja aðskilinna þjóðarleikvanga utanhúss í Laugardal, þar sem þegar er unnið að uppbyggingu þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir

Laugardalsvöllur yrði þannig byggður upp sem knattspyrnuvöllur eingöngu, þar sem mögulegt yrði að leika stærstan hluta ársins, en nýr þjóðarleikvangur í frjálsíþróttum risi á nýjum stað í Laugardal.  

Alþjóðlegur árangur kallar á bætta aðstöðu

Markmiðið er að byggja upp leikvanga í knattspyrnu og frjálsíþróttum með heildarumgjörð og búnað sem uppfylla kröfur til alþjóðlegra keppnisviðburða. 

Metnaður stjórnvalda stendur eðli málsins samkvæmt til þess að styðja við sívaxandi árangur og afrek Íslendinga í alþjóðlegum íþróttakeppnum, en mikilvægt er að leikvangar standist ríkar kröfur alþjóðlegra íþróttasambanda til alþjóðlegrar keppni. 

Laugardalurinn

Laugardalsvöllur, sem hefur verið vettvangur glæsilegra íþróttaafreka frá 1959, er sá leikvangur sem kemst næst því að uppfylla alþjóðlegar kröfur – en þar er hins vegar úrbóta þörf. 

Góður árangur íslenskra landsliða og félagsliða í knattspyrnu leiðir til þess að spila þarf leiki í alþjóðlegum keppnum allt árið um kring. Fyrsti áfangi í uppbyggingu Laugardalsvallar verður að skipta út núverandi grasi á vellinum fyrir blandað gras (svokallað hybrid-gras) og setja hitunarkerfi undir völlinn. Markmiðið er að gera Laugardalsvöll þannig leikfæran mun stærri hluta ársins en nú er. 

Ríki og borg leggja hvor um sig allt að 250 milljónir króna til framkvæmdarinnar. Þjóðarleikvangur ehf., sem er í eigu ríkisins, Reykjavíkurborgar og KSÍ, annast verkið.

Framúrskarandi aðstaða fyrir frjálsar íþróttir

Með ákvörðun um notkun hybrid-grass á Laugardalsvelli er þar með útilokuð keppni í kastgreinum frjálsíþrótta. Því verður lagt kapp á að reisa nýjan þjóðarleikvang fyrir frjálsíþróttir og hrinda þeirri vinnu af stað eins fljótt og kostur er. Í því samhengi er meðal annars horft til keppni á Smáþjóðameistaramóti á Íslandi 2028 sem og Smáþjóðaleika, fáum árum síðar. Vinnan muni byggja á tillögum starfshóps mennta- og menningarmálaráðuneytisins um þjóðarleikvang í frjálsíþróttum frá árinu 2021. Leikvanginum er þannig ætlað að vera opinn og aðgengilegur þjóðarleikvangur lýðheilsu sem og mikilvægur þáttur í afreksuppbyggingu með tengingu við Afreksmiðstöð Íslands.  

Þá mun mennta- og barnamálaráðherra, sem fer með málefni íþrótta, leggja fram tillögur að aðstöðu fyrir æfingar og keppni í frjálsíþróttum á meðan á uppbyggingu nýs leikvangs stendur í samstarfi við Frjálsíþróttasamband Íslands.