Heilsueflandi Breiðholt blæs til spennandi fræðslu í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti kl. 18:00 fimmtudagskvöldið 16. mars nk. Hinn kunni fyrirlesari Þorgrímur Þráinsson mætir á svæðið og gefur foreldrum hollráð um foreldrahlutverkið.
Fyrirlesturinn er sérstaklega miðaður að foreldrum ungmenna í framhaldsskóla og unglingadeild grunnskóla og tekur um klukkustund. Aðgangur er ókeypis í boði Heilsueflandi Breiðholts. Foreldrar í Breiðholti eru eindregið hvattir til að fjölmenna á þennan viðburð.