Fleiri félagslegar leiguíbúðir og smáhýsi

""

Borgarráð hefur samþykkt að auka stuðning við Félagsbústaði ehf. vegna kaupa og uppbyggingar á félagslegu leiguhúsnæði og fjölga til muna smáhýsum fyrir utangarðsfólk.

Borgarsjóður mun veita sérstök fjárframlög til að byggja fleiri leiguíbúðir umfram það sem þegar er gert, bæði að hálfu ríkis og borgar. 

Stuðningurinn gildir afturvirkt frá 1. janúar 2018 og getur falið í sér á bilinu 170 mkr. til um 300 mkr. hækkun á framlögum til uppbyggingar félagslegs húsnæðis á þessu ári. 

Ákveðið var að biðla til ráðherra um að afnema fjármagnstekjuskatt af lánum sem borgarsjóður veitir Félagsbústöðum ehf.

Á þessu ári er gert ráð fyrir að leiguíbúðum Félagsbústaða fjölgi um 100 íbúðir.

Fjölgun smáhýsa

Einnig var samþykkt í borgarráði að verja 450 milljónum til að kaupa allt að 25 smáhýsi, sem verða tengd við veitukerfi. Verið er að kanna slík smáhýsi og lóðir sem hentað gætu fyrir þau. Kaup af slíkum smáhýsum falla að skaðaminnkunarverkefninu „Húsnæði fyrst (Housing first)“ og er liður í aðgerðaráætlun í málefnum utangarðsfólks.

Í samþykkt borgarráðs segir að mikilvægt sé að hrinda ofangreindu í framkvæmd sem fyrst, bæði vegna skjólstæðinga velferðarsviðs og þess tíma sem Félagsbústaðir hafa til að nýta sér samþykktan stuðning á þessu ári.