Nýtt fjölnota íþróttahús fyrir boltaíþróttir var formlega tekið í notkun í dag í Egilshöll í Grafarvogi.
Það var kátt á hjalla í Egilshöll í dag en þar var nýtt fjölnota íþróttahús fyrir boltaíþróttir vígt af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og mjög hressum krökkum sem hrópuðu af öllum mætti. Áfram Fjölnir!
Reginn fasteignafélag byggði íþróttahúsið ásamt öðrum mannvirkjum í Egilshöll. Reginn rekur íþróttaaðstöðuna en Reykjavíkurborg leigir tíma í húsinu fyrir íþróttafélagið samkvæmt samkomulagi. Skrifað var undir samkomulag um þennan rekstur í janúar 2017 en íþróttahúsið hefur risið á undraskömmum tíma.
Húsið er 2.750 fermetrar að stærð og þar verður aðstaða til að æfa m.a handbolta og körfubolta en þær íþróttir hafa verið í mikill sókn í Grafarvogi.
Í máli Jóns Karls Ólafssonar, formanns Fjölnis, kom fram að yfir 4.000 iðkendur æfa íþróttir hjá Fjölni í fjölmörgum íþróttagreinum og starfa um 200 manns við þjálfun þar á hverjum degi. Ekki er langt síðan vegleg fimleikahöll var byggð við Egilshöll.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri klippti á borða ásamt hundruðum ungra íþróttaiðkenda. Hann minnti krakkana á að þetta væri höllin þeirra og að þau yrðu að ganga vel um hana.
Ingó Veðurguð spilaði og söng nokkur vel valin lög sem viðstaddir tóku hressilega undir. Síðan fengu allir íspinna til að fagna þessum tímamótum í íþróttastarfi Fjölnis.
Í húsinu verður ennfremur aðstaða fyrir áhorfendur þegar fram líða stundir.