Fjöldi sveita á Innipúkanum

Menning og listir

""

Innipúkinn hefur skipað sér í sess meðal vinsælustu viðburða verslunarmannahelgar síðustu ár. Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sérmiða á hátíðina í ár sem fer framdagana 2. til 4. ágúst. Á síðustu árum  hafa þekktar hljómsveitir stigið á svið á hátíðinni og má þar nefna bandarísku sveitirnar Cat Power og Blonde Redhead og íslensku sveitina Amiinu. Meðal þeirra tónlistarmanna sem hafa staðfest komu sína í ár eru Grísalappalísa, Steed Lord, Gísli Pálmi og Botnleðja.

Þetta er í tólfta skipti sem viðburðurinn er haldinn og mun hann í ár fara fram á Faktorý, Kex Hostel og Fellagörðum í Breiðholti en þar hefur mikið menningarlegt uppbyggingarstarf átt sér stað í sumar.