Fjárfest í fólkinu í borginni og horft til framtíðar í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2025

Fjármál

Einar Þorsteinsson borgarstjóri í pontu í borgarstjórnarsal og sitjandi við borð eru Magnea Gná og Helga Laxdal

Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar var samþykkt í borgarstjórn í kvöld. Samkvæmt henni er stefnt  að því að bæta stöðu borgarsjóðs hraðar en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Einar Þorsteinsson borgarstjóri mælti fyrir frumvarpi um fjárhagsáætlun í fyrsta sinn.  

Í fjárhagsáætlun 2025 og fimm ára áætlun 2025-2029 sem samþykkt var í borgarstjórn um klukkan 23:02 eftir rúmlega 11 tíma umræður er gert ráð fyrir tæplega 1,3 milljarða króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu A-hluta sem fer síðan batnandi út áætlunartímabilið til samræmis við markmið fjármálastefnu.   

Skörp forgangsröðun og fjárfest í fólkinu í borginni 

„Þetta er metnaðarfull áætlun sem felur það í sér að það er verið að fjárfesta í fólkinu í borginni, fjölskyldunum, velferð þeirra og öryggi – og horft til framtíðar,“ sagði Einar Þorsteinsson borgarstjóri við upphaf umræðunnar í borgarstjórn sem var um hádegisbil í dag. Hann sagði að stóra myndin væri sú að Reykjavík sé að ná markmiðum sínum frá síðustu fjárhagsáætlun hraðar en gert var ráð fyrir og þakkaði starfsfólki og stjórnendum borgarinnar fyrir sinn ómetanlega þátt í því.  

Öguð fjármálastjórn og áætlanir sem standast

Borgarstjóri sagði að þær aðgerðir sem var ráðist í til að bregðast við erfiðri fjárhagsstöðu í upphafi kjörtímabils hafi skilað sér. „Við höldum áfram að vaxa út úr vandanum sem við höfum verið að takast á við frá upphafi kjörtímabilsins. Fáir trúðu því að okkur tækist að snúa um 16 milljarða halla í afgang á svo skömmum tíma en það hefur tekist með agaðri fjármálastjórn og samvinnu innan meirihlutans.“ 

Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 ásamt greinargerð fjármála- og áhættustýringarsviðs, síðari umræða, sbr. 1. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 5. nóvember  

Fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2025-2029, síðari umræða, sbr. 2. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 5. nóvember