Fimmtán bækur tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur
Menning og listir Skóli og frístund
Tilkynnt var um tilnefndar bækur við hátíðlega athöfn í Gerðubergi þar sem nú stendur yfir sýningin; Þetta vilja börnin sjá, myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sem komu út á árinu 2016.
Tilnefnt var í þremur flokkum, fimm bækur í hverjum; fyrir bestu frumsömdu bókina, best myndskreyttu barnabókina og bestu þýðingu á barnabók sem gefin var út á árinu 2016.
Besta myndskreytta barnabókin á árinu 2016;
- Hafsteinn Hafsteinsson fyrir Enginn sá hundinn – útg. Mál og menning
- Linda Ólafsdóttir fyrir Íslandsbók barnanna – útg. Iðunn
- María Sif Daníelsdóttir fyrir Vísnagull – útg. Tónagull
- Lína Rut Wilberg fyrir Þegar næsta sól kemur – útg. NB forlag
- Halla Sólveig Þorgeirsdóttir fyrir Ævintýrið af Sölva og Oddi konungi – útg. Töfrahurð
Besta þýðing á barna- og unglingabók á árinu 2016;
- Harpa Magnadóttir fyrir þýðingu sína á bókinni 172 tímar á tunglinu eftir norska rithöfundinn Johan Harstad – útg. Björt.
- Ingibjörg Hjartardóttir fyrir þýðingu sína á bókinni Annað land eftir sænska rithöfundinn Håkan Lindquist – útg. Salka
- Lemme Linda Saukas Ólafsdóttir fyrir þýðingu sína á Einhver Ekkineinsdóttir eftir eistnesku skáldkonuna Kåtlin Kaldmaa – útg. Bókstafur
- Halla Sverrisdóttir fyrir þýðingu sína á bókinni Innan múranna eftir bandarísku skáldkonuna Nova Ren Suma – útg. Björt.
- Guðni Kolbeinsson fyrir þýðingu sína á Norn eftir dansk/sænska tvíeykið Kim Fupz Aakeson og Rasmus Bregnhöi – útg. Mál og menning
Besta frumsamda barna- og unglingabókin á árinu 2016;
- Hildur Knútsdóttir og Þórdís Gísladóttir fyrir Dodda – bók sannleikans – útg. Bókabeitan
- Margrét Tryggvadóttir fyrir Íslandsbók barnanna – útg. Iðunn
- Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir fyrir Ormhildarsögu – útg. Salka
- Ragnheiður Eyjólfsdóttir fyrir Skuggasögu II: Undirheima – útg. Mál og menning
- Hildur Knútsdóttir fyrir Vetrarhörkur – útg. JPV
Barnabókaverðlaun Reykjavíkur eiga sér lengsta sögu barnabókaverðlauna á landinu og er helsta markmið þeirra að vekja athygli á því sem vel er gert í bókaútgáfu fyrir yngstu lesendurna og hvetja til bóklesturs. Verðlaunin verða hefðinni samkvæmt afhent í Höfða síðasta vetrardag 19. apríl.
Meira um Barnabókaverðlaunin.