Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2022

Skipulagsmál

Viðurkenningarhafar að lokinni afhendingu fyrir utan Höfða í dag.

 

Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2022 voru veittar við hátíðlega athöfn í Höfða í dag, miðvikudaginn 19. október. Reykjavíkurborg veitir árlega viðurkenningar fyrir fallegar stofnana- , fyrirtækja- og fjölbýlishúsalóðir og fyrir vandaðar endurbætur á eldri húsum.

Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2022 hljóta eftirfarandi:

Fallegar og vel hirtar lóðir 2022:

Freyjugata 41 – Ásmundarsalur  (Fyrirtækjalóð)

Lóðin við Ásmundarsal er stílhrein, minimalísk og opin. Hún tónar einstaklega vel við bygginguna sem er eftir Sigurð Guðmundsson arkitekt. Við vegginn er látlaus bekkur sem er einnig vegasalt og kemur því notendum sínum skemmtilega á óvart. Á grasflötinni eru ýmis listaverk sem gestir og gangandi vegfarendur fá að njóta, en lóðin er síbreytileg eftir því hvaða listaverk prýða hana. Einstakt konsept sem skapar sérstöðu í borgarrýminu.  

Nauthólsvegur 83  (Fjölbýlishúsalóð)

Lóðin hefur góða tengingu við nærliggjandi umhverfi og býður notendur sína velkomna með látlausum bekkjum, grilli og hjólaskýli. Gróðurinn á svæðinu er fallegur og nokkuð fjölbreyttur. Umhverfið í heild sinni er aðlaðandi, og gott jafnvægi er milli hins manngerða og grænna svæða.

Stýrimannastígur 9  (Endurbætur á einkalóð)

Einstaklega fögur endurgerð á bæði húsi og garði þar sem vandað er til allra verka. Minnstu smáatriði fá að njóta sín og listaverk eftir Kristin Hrafnsson er staðsett fyrir framan aðalinngang hússins. Vandað er til plöntuvals og einn fallegasti álmur í Reykjavík er staðsettur í bakgarði. Heildarútlit og efnisval lóðar er fagurt og fágað og er í fallegu samspili við húsið, sem gerir heildarásýndina einstaka.   

Vandaðar endurbætur á húsum 2022:

Mjóstræti 6

Húsið var byggt árið 1919 og hefur hátt varðveislugildi. Það er næst stærsta steinhlaðna húsið í Reykjavík og á sér m.a. sögu sem prentsmiðja. Í tilefni af 100 ára afmæli hússins hafa eigendur fært það nær upprunalegu útliti sínu, m.a. með því að breyta gluggunum. Húsið hefur endurheimt glæsilegan svip sinn og breytingin er til mikillar prýði fyrir götumyndina.

Vesturgata 51A  (Stefánshús)

Húsið var byggt árið 1882 og var fyrsti eigandi þess Stefán Þórðarson. Undanfarin ár hafa staðið yfir miklar endurbætur á húsinu með það að markmiði að færa það nær upprunalegu útliti. Húsið á sér langa og áhugaverða sögu og hefur gengið í gegnum margar útlitsbreytingar í gegnum tíðina. Húsið er nú tjargað, gluggar hvítmálaðir og hleðslan í grunni þess - sem hafði verið múrhúðuð - fær nú aftur að njóta sín. Árangurinn er til fyrirmyndar.

Til hamingju með fegrunarviðurkenninguna.

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar veitir viðurkenningarnar eftir tilnefningar frá starfshóp sem skipaður var eftirfarandi aðilum:

Guðlaug Erna Jónsdóttir, arkitekt f.h. Borgarsögusafns, Guðrún Birna Sigmarsdóttir, landslagsarkitekt á umhverfis- og skipulagssviði, Pétur Andreas Maack, arkitekt á umhverfis- og skipulagssviði, Sólveig Sigurðardóttir, arkitekt á umhverfis- og skipulagssviði.