Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2022

""

Á afmæli Reykjavíkurborgar þann 18. ágúst, eða sem næst þeim degi, ár hvert eru veittar viðurkenningar fyrir vandaðar endurbætur á eldri húsum og fyrir lóðir þjónustu-, stofnana- og fjölbýlishúsa sem þykja til fyrirmyndar.

Auk lóða þjónustu-, stofnana- og fjölbýlishúsa sem þykja til fyrirmyndar eru veittar viðurkenningar fyrir vel útfærð svæði fyrir utan verslanir við „sumargötur“, þ.e. götur sem eru göngugötur á sumrin.

Sendu inn hugmynd eða ábendingu

Óskað er eftir ábendingum um hús og lóðir sem verðskulda fegrunarviðurkenningu í ár. Valið verður í höndum vinnuhóps sem skipaður er fulltrúum frá umhverfis- og skipulagssviði og Borgarsögusafni.

Hugmyndir skulu sendar inn með tölvupósti merktum Fegrunarviðurkenningar 2022 á skipulag@reykjavik.is í síðasta lagi þann 29. júlí 2022.

Heimasíða Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar frá upphafi.