No translated content text
Árlega eru veittar viðurkenningar fyrir endurbætur á eldri húsum og fallegar stofnana-, fyrirtækja- og fjölbýlishúsalóðir. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Hjálmar Sveinsson formaður umhverfis-og skipulagsráðs afhentu fegrunarviðurkenningarnar við hátíðlega athöfn í Höfða í dag.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Hjálmar Sveinsson formaður umhverfis-og skipulagsráðs afhentu fegrunarviðurkenningarnar við hátíðlega athöfn í Höfða í dag.
Viðurkenningar árið 2015 hljóta fjórar lóðir, kaffihús við sumargötur og fjögur hús.
Þjónustu- og stofnanalóðir:
• Suðurlandsbraut 58-64 og 66 - Mörkin þjónustuíbúðir og hjúkrunarheimili
• Engjateigur 11
Fjölbýlishúsalóðir:
• Maríubakki 2-16
• Hæðargarður 31-35
Sumargötur:
• Skólavörðustígur 3A, Mokka kaffi
Hús:
• Grettisgata 35B
• Hringbraut 109-115, Framnesvegur 55-57
• Láland 22
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur veitir viðurkenningarnar eftir tilnefningar frá vinnuhópum sem í sátu:
Vegna viðurkenningar fyrir lóðir fjölbýlishúsa og fyrirtækja/stofnana
Björn Ingi Edvardsson, landslagsarkitekt og Valný Aðalsteinsdóttir verkefnisstjóri á Umhverfis- og skipulagssviði.
Vegna viðurkenningar fyrir endurbætur á eldri húsum
Drífa Kristín Þrastardóttir, safnvörður, Borgarsögusafni Reykjavíkur og
Margrét Þormar, arkitekt hjá skipulagsfulltrúa.