Fasteignagjöld 2023

Reykjavíkurhöfn

Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2023 verða birtir á vefsíðunni island.is og á Rafrænni Reykjavik á næstu dögum.

Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2023

Álagningar- og breytingarseðlar eru ekki sendir í pósti í samræmi við breytingu sem gerð var á lögum nr. 4/1995 sem tók gildi 1. janúar 2019, en þá er sveitarstjórn heimilt að senda tilkynningu um álagningu fasteignaskatts rafrænt.

Fjármála- og áhættustýringarsvið Reykjavíkurborgar annast álagningu og innheimtu á fasteignaskatti, lóðaleigu og sorphirðugjaldi.

Fasteignagjöld ársins 2023, yfir 25.000 kr., greiðast með ellefu jöfnum greiðslum á eftirfarandi gjalddögum: 30. janúar, 4. mars, 2. apríl, 2. maí, 3. júní, 2. júlí, 2. ágúst, 2. september, 2. október, 1. nóvember og 3. desember. Eindagi er 30 dögum síðar.

Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 30. janúar.

Fasteignagjöldin verða innheimt í gegnum netbanka þar sem jafnframt er hægt að prenta út greiðsluseðil. Greiðsluseðlar verða ekki sendir út en hægt er að óska eftir heimsendum greiðsluseðlum á mínum síðum á www.reykjavik.is eða í gegnum þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411 1111.

Nánari upplýsingar um fasteignagjöld 2023

Auglýsing um fasteignagjöld 2022